
Fotbolti.net
Sports & Recreation Podcasts
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Location:
United States
Genres:
Sports & Recreation Podcasts
Description:
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Language:
Icelandic
Website:
https://fotbolti.net/radio.php
Episodes
Fótbolta nördinn - Dómarar vs Njarðvík
3/9/2026
Áttundi og loka þátturinn í 16-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Gunnar Oddur Hafliðason fyrir Dómarastéttina og Guðmundur Magnússon fyrir Njarðvík. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.
Duration:00:28:15
Uppbótartíminn - Landsliðið, stutt í Bestu og hvert fer Sara Björk?
3/9/2026
Uppbótartíminn, hlaðvarp um kvennaboltann á Íslandi, heilsar á mánudegi. Íslenska landsliðið byrjaði undankeppnina fyrir HM á því að mæta tveimur sterkustu þjóðum Evrópu og það gekk heldur brösulega. Það er einn og hálfur mánuður í Bestu deildina og nóg til að ræða um í tengslum við hana. Svo er spurning hvort Sara Björk Gunnarsdóttir, ein besta fótboltakona í sögu Íslands, sé á heimleið. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur fóru yfir allt það helsta.
Duration:01:20:35
Kjaftæðið - Stóra Bestu deildar yfirferðin
3/8/2026
Baldvin Borgars, Nonni Kristjáns og Leon Péturs fóru ofan í saumana á Bestu deildinni nú þegar það er mánuður í mót.
Duration:01:44:32
Útvarpsþátturinn - Mánuður í Bestu deildina
3/7/2026
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net er síðasta ótímabæra spáin fyrir Bestu deildina 2026 á dagskrá. Rætt er um öll liðin, farið yfir helstu fréttir og frammistöðuna á undirbúningstímabilinu. Elvar Geir, Tómas Þór og Valur Gunnars eru í fiskabúrinu og sérstakur gestur er fótboltaþjálfarinn Haraldur Árni Hróðmarsson sem hefur verið að lýsa leikjum undirbúningstímabilsins á Livey.
Duration:01:46:11
Hugarburðarbolti GW 29 Svaðalega Salah salan.
3/6/2026
Arsenal eru komnir með 7 stiga forskot í deildinni eftir sigur á Brighton á Amex 0-1. Man City missteig sig í 2-2 jafntefli gegn Nottingham Forest á Etihad. Man Utd og Liverpool lutu bæði í gras gegn andstæðingum sínum og Tottenham er einungis 1 stigi fyrir ofan fallsæti eftir tap í Lundúnaslag gegn Crystal Palace á heimavelli.
Duration:01:35:04
Enski boltinn - Hveitibrauðsdagarnir að baki
3/6/2026
Enski boltinn eftir 29. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Elvar Geir, Sæbjörn Steinke og Kári Snorra í Pepsi Max stúdíóinu. Arsenal styrkti stöðu sína með naumum 1-0 sigri gegn Brighton. Á meðan gerði Manchester City aðeins jafntefli gegn Nottingham Forest. Liverpool tapaði óvænt gegn Úlfunum, Manchester United tapaði loks undir stjórn Michael Carrick og vont verður verra hjá Tottenham sem nálgast fallsætin.
Duration:00:44:30
Kjaftæðið - Tottenham-menn skíthræddir við fall
3/2/2026
Baldvin Borgars, Viktor Unnar og Goggarinn fóru yfir helgina.
Duration:01:17:46
Hugarburðarbolti GW 28 Markvörður með stálhönd.
3/2/2026
Arsenal eru áfram með 5 stiga forskot á toppi deildarinnar. Það var markasúpa í leikjum helgarinnar. Liverpool vann West Ham 5-2 á Anfield. Burnley tapaði 3-4 gegn Brentford eftir hetjulega baráttu. Man City unnu sterkan 0-1 sigur gegn góðum Leedsurum og Newcastle tapaði 2-3 heima gegn Everton. Þetta og allt hitt í þættinum.
Duration:01:18:48
Enski boltinn - Heimskur Neto, trylltur Sesko og Spurs í djúpum skít
3/2/2026
Það er spenna á öllum vígstöðum í ensku úrvalsdeildinni þessa stundina. Arsenal og Manchester City eru að berjast á toppnum, Meistaradeildarbaráttan er hörð og á hinum enda töflunnar eru nokkur lið í fallbaráttu. Er Tottenham versta lið deildarinnar þessa stundina? Guðmundur Aðalsteinn, Magnús Haukur og Kári Snorrason fóru yfir allt það helsta eftir umferðina.
Duration:00:54:06
Útvarpsþátturinn - Heimir og hættulegar aðstæður
2/28/2026
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net kemur tvíefldur til leiks. Elvar Geir og Tómas Þór fara yfir allt það helsta sem hefur verið í gangi í íslenska boltanum og rætt um landsleik Mexíkó og Íslands. Hanna Símonardóttir er á línunni. Gestur þáttarins er Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis. Víða er komið við í spjalli við hann.
Duration:01:43:40
Kjaftæðið - Allt farið á fullt í íslenska og frábær saga af Kasper Högh
2/26/2026
Baldvin Borgars, Tonson og Halli Hróðmars fóru yfir vikuna.
Duration:00:58:00
Hugarburðarbolti GW 27 Tvö met slegin í Enska!
2/24/2026
Arsenal eru með montréttinn í Norður London eftir helgina. Liverpool fóru eins og Hrói Höttur um Nottingham borg og stálu 0-1 sigri gegn Forest. Man City sigraði Newcastle 2-1. Man Utd gerðu góða ferð til Liverpool borgar og unnu Everton 0-1. Fulham og Brighton með flotta útisigra um helgina og James Milner er orðinn leikjahæsti leikmaður í sögu úrvalsdeildarinnar þegar hann lék sinn 654. leik.
Duration:01:15:06
Kjaftæðið - Liverpool rændi stigum í Nottingham
2/23/2026
Baldvin Borgars, Nonni Kristjáns og Tonson settust niður og ræddu helgina í boltanum.
Duration:01:06:12
Enski boltinn - Verða þau í mismunandi deildum á næsta tímabili?
2/23/2026
Arsenal vann þægilegan sigur gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í gær en það er spurning þessir erkifjendur verði í mismunandi deildum á næsta tímabii. Arsenal er fimm stigum á undan Manchester City, sem á þó leik til góða. Það er möguleiki á mjög spennandi titilbaráttu næstu vikurnar. Guðmundur Aðalsteinn fór yfir 27. umferð ensku úrvalsdeildarinnar með Magnúsi Hauki Harðarsyni og Vigni Má Eiðssyni úr Hugarburðarbolta þar sem rætt var um leiki umferðarinnar og helstu sögulínur.
Duration:01:03:25
Kjaftæðið - Slátrun í Boganum og allt sauð uppúr á Molineux
2/18/2026
Baldvin Borgars, Steinke og Tonson fóru yfir vikuna í boltanum.
Duration:01:09:51
Fótbolta nördinn - Dr. Football vs Stjarnan
2/17/2026
Sjöundi þátturinn í 16-liða úrslitum Fótbolta nördans, en í þessum þætti eigast við Hrafnkell Freyr Ágústsson fyrir Dr. Football og Alex Þór Hauksson fyrir Stjörnuna. Þáttastjórnandi, dómari og spyrill er að vanda Haraldur Örn Haraldsson en hann er meðhöfundur spurninga ásamt Sverri Erni Einarssyni.
Duration:00:39:37
Enski boltinn í fyrsta sinn í mynd - Tudor tekur við Tottenham
2/16/2026
Enski boltinn var í fyrsta skiptið í mynd, en Guðmundur Aðalsteinn fékk til sín Magnús Hauk Harðarsson, Hörð Ágústsson og Einar Guðnason til að ræða allt það helsta sem hefur gengið á undanfarið í enska boltanum.
Duration:01:16:03
Útvarpsþátturinn - Farið yfir sviðið með Eysteini
2/14/2026
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net 14. febrúar. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Eysteinn Pétur Lárusson framkvæmdastjóri KSÍ er gestur þáttarins og farið um víðan völl í spjalli við hann þegar tvær vikur eru í ársþing.
Duration:01:39:10
Hugarburðarbolti GW 26 Stærsta klúður tímabilsins ?
2/13/2026
Man City saxar á forskot Arsenal. Var þetta stærsta klúður tímabilsins? Liverpool fyrstir til að sigra Sunderland á Leikvangi Ljóssins. Thomas Frank og Sean Dyche eru orðnir atvinnulausir í bili. Sesko bjargaði Man Utd í London gegn West Ham. Mávarnir í frjálsu falli og Jörgen Strand Larsen byrjar vel í fyrsta heimaleik sínum en ævintýrið endaði ekki vel.
Duration:01:15:09
Kjaftæðið - Arsenal missteig sig og menn reknir
2/12/2026
Baldvin Borgars, Nonni Kri og Leon Péturs fóru yfir vikuna í boltanum.
Duration:01:19:18