Karfan-logo

Karfan

Sports & Recreation Podcasts

Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.

Location:

United States

Description:

Á podcast rás Körfunnar er að finna margar ólíkar upptökur sem allar eiga það sameiginlegt að vera tengdar íslenskum körfuknattleik. Rásin hefur verið til síðan árið 2017.

Language:

Icelandic


Episodes
Ask host to enable sharing for playback control

The Uncoachables: Lots of Misunderstandings

5/4/2024
Helgi, David and Jeanne welcome summer and the playoffs have begun! We begin by going over the end of the regular season and then move on to all playoffs rounds being played in all senior divisions (Subway leagues, 1st and 2nd division on both sides). Towards the end we discuss the beginning of the silly season and what this summer holds. Enjoy! Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson, David Patchell and Jeanne Sicat The Uncoachables is brought to you by Lykill, Subway, Kristall and Lengjan.

Duration:01:07:30

Ask host to enable sharing for playback control

Tvígrip: KR í brasi, spútniklið Skagamanna & Örlygur Sturluson

4/30/2024
Tvígrip - karfan kortlögð 1997-1998 17 ára Grikki mætir í Grindavík, KR-ingar í brasi, dómarar vildu fá meira borgað. Skagamenn koma á óvart í úrslitakeppninni, Hrannar Hólm á línunni frá Köben ásamt Hermanni Hauks sem hélt í atvinnumennskuna. Grindvíkingar ráku sinn besta mann og við heyrum í Örvari varðandi Örlyg Sturluson. Þetta og fullt af öðru í Tvígrip karfan kortlögð. Podcast Körfunnar er kostað af Lengjunni, Subway, Lykil, Kristal og Tactica.

Duration:03:57:06

Ask host to enable sharing for playback control

Aukasendingin: Bensínlausir Stólar, nýliðasigrar og taktík þjálfara í viðtölum

4/16/2024
Aukasendingin fékk Sæbjörn Steinke og Guðmund Auðunn í heimsókn til þess að ræða fréttir vikunnar, úrslitakeppni Subway deilda karla og kvenna, úrslitakeppni fyrstu deilda karla og kvenna, sigur KV í annarri deildinni og og margt, margt, margt fleira. Þá fer Guðmundur undir lokin yfir fimm uppáhalds Keflvíkingana sína frá upphafi. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Lengjunnar og Tactica.

Duration:01:19:44

Ask host to enable sharing for playback control

Aukasendingin: Fréttir vikunnar, fimm efnilegustu og 8 liða úrslitin í Subway deild karla

4/8/2024
Aukasendingin kom saman með þeim Máté Dalmay þjálfara Hauka í Subway deild karla og Herði Unnsteinssyni þjálfara KR í fyrstu deild kvenna til þess að ræða fréttir vikunnar, 8 liða úrslit Subway deildar karla, hvaða leikmenn eru þeir efnilegustu í deildinni og margt fleira. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Lengjunnar og Tactica.

Duration:01:18:34

Ask host to enable sharing for playback control

Fyrstu fimm: Helena Sverrisdóttir

4/7/2024
Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer Hafnfirðingurinn Helena Sverrisdóttir yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hún spilaði með á feril sínum. Helena lagði skóna á hilluna sem leikmaður Hauka í nívember síðastliðnum. Haukar eru hennar uppeldisfélag, en þar hóf hún að leika með meistaraflokki félagsins 12 ára gömul árið 2000. Frá Haukum fór hún 2007 til TCU í bandaríska háskólaboltanum þar sem hún lék til 2011. Eftir það tóku við nokkur góð ár í atvinnumennsku á meginlandi Evrópu, þar sem hún lék fyrir sterk lið í Ungverjalandi, Slóvakíu og Póllandi. Eftir að hún kom til baka til Íslands lék hún fyrir Hauka, Val og síðan Hauka aftur, þar sem hún var í nokkur tímabil aðstoðarþjálfari þeirra liða. Helena var í 12 skipti valin körfuknattleikskona Ísland og í 7 skipti besti leikmaður efstu deildar. Á feril sínum á Íslandi vann hún 5 Íslandsmeistaratitla og í 5 skipti bikarkeppnina. Þá varð hún tvisvar slóvaskur meistari og vann bikarkeppnina þar í þrjú skipti. Helena hóf einnig ung að leika fyrir íslenska landsliðið, aðeins 14 ára gömul árið 2002, en í heild lék hún 81 leik fyrir Ísland. Þann síðasta lék hún í nóvember gegn Tyrklandi heima í Ólafssal, en í leiknum á undan hafði hún sett nýtt landsleikjamet með sínum 80. leik. Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Subway og Lengjunnar.

Duration:00:58:43

Ask host to enable sharing for playback control

Aukasendingin: Spenna í Subway, Stólarnir eða Stjarnan out og spá fyrir 1. deild karla úrslitakeppni

4/1/2024
Aukasendingin fékk Ólaf Þór í heimsókn til þess að ræða fréttir vikunnar, síðustu umferð í Subway deild karla, lokaumferðina sem fer fram seinna í vikunni, lokastöðu og úrslitakeppni fyrstu deildar karla og lokaumferðina í fyrstu deild kvenna. Þá velur Aukasendingin fimm mikilvægustu leikmenn Subway og fyrstu deildar karla farandi inn í úrslitakeppnir beggja deilda. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Lengjunnar og Tactica.

Duration:01:11:09

Ask host to enable sharing for playback control

Aukasendingin: Tvöfalt í Keflavík, KR bestir og þeir bestu í fyrstu á tímabilinu

3/26/2024
Aukasendingin fékk Mumma Jones í heimsókn til þess að ræða fréttir vikunnar, bikarvikuna, úrslitakeppni fyrstu deildar karla, Subway deild karla og margt, margt, margt fleira. Þá er einnig farið yfir hvaða fimm íslensku leikmenn hafa skarað framúr í fyrstu deild karla á tímabilinu. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Lengjunnar og Tactica.

Duration:00:49:32

Ask host to enable sharing for playback control

The Uncoachables: If It Ain't Broke

3/26/2024
Helgi, David and Jeanne are back after only a month to discuss all things Icelandic basketball. We begin by talking about the great start of the men's Icelandic national team of the Eurobasket qualifiers, we then discuss some big news stories and in particular some coaches leaving their teams. The recently finished Cup Week is covered, both senior and youth, and the tables and prospects of teams in all divisions considered. Towards the end we pick our MVPs, biggest surprises in the regular season and biggest disappointments up until now. Enjoy! Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson, David Patchell and Jeanne Sicat The Uncoachables is brought to you by Lykill, Subway, Kristall and Lengjan.

Duration:01:10:52

Ask host to enable sharing for playback control

Tvígrip: Nýr formaður, agabönn, breytt mót og Damon Johnson á línunni

3/26/2024
Tvígrip karfan kortlögð 8. þáttur 1996-1997 Starfsmenn Tvígrips gerðust heimsborgarar og hringdu til USA og töluðu við Damon Johnson um tímann sinn á Íslandi. Breytt fyrirkomulag á Íslandsmótinu, ný keppni og nýr formaður KKÍ. Gaui þorsteins fór yfir körfuboltann fyrir Vestan og tenginguna við KR. Körfuboltamenn í eldri kantinum fara í atvinnumennskuna, Grindvíkingar kærðu og voru kærðir. Örvars-hornið á sínum stað. Opið bréf enn og aftur frá Grindvíking. Siggi Ingimundar kíkti í spjall sem og Kristinn Óskarsson dómari og fór yfir störf dómara þá og nú. Einnig kom Kiddi með skemmtilegar sögur af sérkennilegum leikjum. Þjálfarar og leikmenn reknir eins og venjulega svo voru leikmenn settir í agabönn, sumir fyrir það að djamma með fótboltaliði bæjarins. KR-ingar í hremmingum með liðið sitt. Podcast Körfunnar er kostað af Lengjunni, Subway, Lykil, Kristal og Tactica.

Duration:05:15:48

Ask host to enable sharing for playback control

Aukasendingin: Bikarvikan, óstöðvandi Grindvíkingar og bestu leikmenn deildarinnar

3/18/2024
Aukasendingin fékk Ólaf Þór Jónsson í heimsókn til þess að ræða fréttir vikunnar, leikmenn erlendis, Subway deild karla, bikarkeppnina, fyrstu deildir karla og kvenna, bestu leikmenn Subway deildar karla og margt, margt, margt fleira. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Lengjunnar og Tactica.

Duration:01:16:21

Ask host to enable sharing for playback control

Aukasendingin: Áhugaverðir atvinnumenn, vörutalning í Subway og blóðug barátta í neðri deildum

3/11/2024
Aukasendingin fékk Ólöfu Helgu og Árna Jóhanns í heimsókn til þess að ræða fréttir vikunnar, Subway deild karla, Subway deild kvenna, bikarkeppnina, fyrstu deildir karla og kvenna og margt, margt, margt fleira. Þá er farið yfir minnistæðustu erlendu leikmenn síðustu tíu ára í úrvalsdeild karla og kvenna. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Lengjunnar og Tactica.

Duration:01:23:14

Ask host to enable sharing for playback control

Tvígrip: Geitin til Stólana, allir reknir og Herbert og Paxel á línunni

3/7/2024
Tvígrip: Karfan körtlögð Tímabilið 1995 til 1996 / Fyrri hluti Pétur Guðmundsson í Tindastól, Ingólfur Hannesson lætur KKÍ heyra það en Pétur Hrafn svaraði fullum hálsi. Var þáttastjórnandi Tvígrips svikinn um miða á NBA leik í London eða var það bara misskilningur? Ef leikmaður er í banni má hann ekki sitja á bekknum? Héldu KR-ingar að þeir yrðu Íslandsmeistarar eftir 9 umferðir? Herbert Arnars á línunni, en þar fer hann yfir víðan völl. Við hringjum einnig í Paxel sem fer vel yfir úrslitakeppnina ásamt Örvars-horninu þar sem Örvar segir frá miður skemmtilegu atviki á Valsmótinu. Kristinn rekinn, Axel rekinn, Hreinn rekinn og Burns rekinn ásamt fleirum. Podcast Körfunnar er kostað af Lengjunni, Subway, Lykil, Kristal og Tactica.

Duration:02:09:34

Ask host to enable sharing for playback control

Aukasendingin: Úrslitadagar í Subway, félögum gefin ráð og hvort er það KR eða ÍR

3/5/2024
Aukasendingin fékk Hallgrím Brynjólfsson í heimsókn til þess að ræða Subway deild karla, síðasta landsliðsglugga, bikarkeppnina, fyrstu deildir karla og kvenna og margt, margt, margt fleira. Þá er farið yfir ráðgjöf til félaga fyrir sumarið, þar sem að Tindastóll, Keflavík, Haukar og fleiri lið fá nokkur ráð gefins. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Lengjunnar og Tactica.

Duration:01:33:38

Ask host to enable sharing for playback control

Fyrstu fimm: Hlynur Bæringsson

2/24/2024
Í þessum síðasta þætti af Fyrstu fimm fer Grundfirðingurinn, leikmaður Stjörnunnar og fyrrum landsliðsfyrirliðinn Hlynur Bæringsson yfir sitt byrjunarlið leikmanna sem hann hefur spilað með. Hlynur er einn af þeim eldri sem spila í Subway deildinni á Íslandi í dag, en á sínum tíma var hann einn af þeim yngstu þar sem hann byrjaði aðeins 15 ára að spila í úrvalsdeildinni. Þá átti hann einnig 23 ára langan feril með íslenska landsliðinu, en þar lék hann fyrst árið 2000 og síðast var hann með því í febrúar á síðasta ári, 2023. Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Subway og Lengjunnar.

Duration:01:32:19

Ask host to enable sharing for playback control

The Uncoachables: The Whole Gang is Back

2/22/2024
Helgi, David and Jeanne are finally reunited as they discuss the last two months (sorry, everyone was moving, sick or busy) of basketball, the transfers and Grindavík going out with a bang. We talk about the splitting of the women's Subway league into A and B, the battle in the men's Subway league for the last few playoff spots and the upcoming national team games on the men's side. Enjoy! Hosts: Helgi Hrafn Ólafsson, David Patchell and Jeanne Sicat The Uncoachables is brought to you by Lykill, Subway, Kristall and Lengjan.

Duration:01:27:47

Ask host to enable sharing for playback control

Fyrstu fimm: Haukur Helgi Briem Pálsson

2/18/2024
Í þessari síðustu útgáfu af Fyrstu fimm fer landsliðsmaðurinn og leikmaður Álftaness Haukur Helgi Briem Pálsson yfir sitt besta byrjunarlið. Haukur hefur verið atvinnumaður í íþróttinni megnið af ævi sinni, en ásamt því að hafa leikið með skólum Montverde og Maryland vestan hafs, átti hann einnig góðan feril á meginlandi Evrópu áður en hann kom aftur til Íslands 2021. Fyrstu fimm er í boði Kristalls, Tactica, Lykils, Subway og Lengjunnar.

Duration:00:58:30

Ask host to enable sharing for playback control

Tvígrip: Samsæriskenningar, afhverju fór Guðjón í Grindavík og Valur á línunni

2/14/2024
Tvígrip: Karfan körtlögð Tímabilið 1994 til 1995 / Seinni hluti Grindvíkingar reka Frank B. í miðri úrslitakeppninni og var ásakaður um að hjálpa Keflvíkingum. Guðni Ö. lét blaðamenn, dómara og KKÍ heyra það. Guðjón Skúlason sagði okkur ástæðuna af hverju hann fór í Grindavík. Einnig komu góðar sögur af fyrrum þjálfara Keflavíkur. Njarðvíkingurinn Valur Ingimundar á línunni. Podcast Körfunnar er kostað af Lengjunni, Subway, Lykil, Kristal og Tactica.

Duration:02:29:27

Ask host to enable sharing for playback control

Aukasendingin: Aþena í Subway, sjóðandi Grindavík, falsanir og fimm uppáhalds Stólar

2/12/2024
Aukasendingin fékk Pálma Þórs og Hraunar Hundtryggan í heimsókn til þess að ræða fréttir vikunnar, síðustu umferð í Subway deild karla, fyrstu deildir karla og kvenna og leikmenn erlendis. Þá velur Pálmi sína fimm uppáhalds leikmenn Tindastóls allra tíma og Hraunar fer yfir þrjá skemmtilegustu körfuboltaleiki sem hann hefur verið viðstaddur. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Subway, Tactica og Lengjunnar.

Duration:01:09:33

Ask host to enable sharing for playback control

Tvígrip: Efnilegir Sandgerðingar, John Rhodes skrifar í blöðin, Örvar á línunni og margt fleira

2/7/2024
Tvígrip: Karfan körtlögð Tímabilið 1994 til 1995 / Fyrri hluti Miklar leikmanna og þjálfara hræringar, Grindvíkingar fá fullt af erlendum leikmönnum. Kærumál í torfærunni þar sem VAR kemur við sögu. Keflvíkingar fá einn efnilegasta leikmann Sandgerðinga. Nýtt fyrirkomulag á Úrvalsdeildinni, John Rhodes sá ástæðu til að skrifa grein í blöðin. Njarðvíkingurinn Örvar Kristjáns á línunni ásamt fullt af öðru í 6. þætti Tvígrips Podcast Körfunnar er kostað af Lengjunni, Subway, Lykil, Kristal og Tactica.

Duration:01:54:38

Ask host to enable sharing for playback control

Aukasendingin: Leikmannakapphlaup Suðurnesjaliða og sögulega vond lið Íslandsmeistara

2/5/2024
Aukasendingin fékk Árna Jóhanns og Ólöfu Helgu til þess að ræða fréttir vikunnar, bikardráttinn, stöðuna í Subway deildunum og margt, margt, margt fleira. Sérstaklega er farið yfir Subway deild kvenna, þar sem liðunum er raðað upp í kraftröðun og þá er valið í fimm leikmanna úrvalslið leikmanna sem best væri að hafa með sér inn í úrslitakeppnina. Þá fer Árni undir lokin yfir hvaða fimm hallir landsins gera best í að taka á móti blaðamönnum. Aukasendingin er í boði Kristalls, Lykils, Tactica, Subway og Lengjunnar.

Duration:01:29:39