Normið-logo

Normið

3 Favorites

Eva Matta og Sylvía Briem Friðjóns, þjálfarar og athafnakonur, taka hrátt plebbaspjall um mannlegheit og skoða leiðir til þess að gera lífið skemmtilegra.

Location:

United States

Description:

Eva Matta og Sylvía Briem Friðjóns, þjálfarar og athafnakonur, taka hrátt plebbaspjall um mannlegheit og skoða leiðir til þess að gera lífið skemmtilegra.

Language:

Icelandic


Episodes
Ask host to enable sharing for playback control

Upprif... ekki niðurrif. - Áskriftarþáttur

2/16/2024
FEBRÚAR WORKSHOP - Þú finnur þennan þátt í fullri lengd í áskriftinni á normid.is ❤️ Skoðaðu styrkleikana þína, hættu þessu djöfulsins niðurrifi og ÁFRAM GAKK ÞÚ MIKLI SNILLINGUR. Án alls gríns samt þá mættum við öll vera duglegri að skoða hvað er gott við okkur. Ekki flóknara en það. Gerum það núna. 🎧

Duration:00:05:41

Ask host to enable sharing for playback control

Rúnturinn - Áskriftarþáttur

2/12/2024
Þú finnur þennan þátt í fullri lengd í áskriftinni á normid.is ❤️ Sumir segja að eitt það mikilvægasta í lífinu sé fólkið okkar.. og tengingin sem við höfum við fólkið okkar. Rúnturinn er þitt tækifæri til að taka ísrúnt eða göngutúr eða bara sófachill með þinni manneskju og styrkja sambandið ALLSVAKALEGA. Vinkonur, vinir, mæðgur, mæðgin, feðgar, feðgin, frænkur, frændur, makar... name it. Þessi þáttur er til þess að gera samböndin þín betri og sterkari. Have fuuun 👏

Duration:00:06:30

Ask host to enable sharing for playback control

Framkvæmdu WORKSHOP - Áskriftarþáttur

1/31/2024
JANÚAR WORKSHOP - Þú finnur þennan þátt í fullri lengd í áskriftinni okkar á normid.is ❤️ Splúnkunútt workshop sem hjálpar okkur að framkvæma. Semsagt hætta að dvelja og ofhugsa og fresta osfrv. Þetta er fyrir öll sem langar að komast skrefinu lengra í lífinu á þessu ári. Jafnvel þessum ársfjórðungi.. er ekki alltaf betra að búta þetta niður?

Duration:00:06:42

Ask host to enable sharing for playback control

Hamingjumettun WORKSHOP - Áskriftarþáttur

1/31/2024
JANÚAR WORKSHOP - Þú finnur workshopið í fullri lengd í áskriftinni okkar á normid.is ❤️ Flest förum við í gegnum tímabil þar sem allt er í blóma og gleði.. þá hugsum við "vá ég ætla alltaaaf að vera svona".. svo gerist lífið. Áður en maður veit af er maður kominn í vesenið eina ferðina enn. Það er náttúrulega bara óraunhæft að vera alltaf í toppstandi, en það er ágætt að grípa í leiðir til þess að ná sér til baka í hamingjuna og gleðina. Hér höfum við akkúrat svoleiðis workshop.

Duration:00:07:20

Ask host to enable sharing for playback control

237. Sniglumst beinustu leið út úr hjarðhegðuninni!

1/16/2024
Þú finnur nýja þætti Í Normið Áskrift! Næææstum því síðasti þátturinn sem við gefum út kæru uppáhalds hlustendur. Við ákváðum að taka létt spin á "snail girl era" pælinguna, hjarðhegðunarvesenið sem myndast óhjákvæmilega í samfélaginu og svo kom dass af umræðu um "delayed gratification" eða seinkun á verðlaunum. Hvernig getum við í ósköpunum þjálfað með okkur smá sjálfsaga og losnað við þessa quick fix stemningu?

Duration:01:34:55

Ask host to enable sharing for playback control

Normið ÁSKRIFT - Upplýsingar

12/27/2023
Hvað verður inni í áskriftinni? Ja, gott að þú spurðir. Hér færðu svarið. See you on the flip side!💃🏼

Duration:00:03:32

Ask host to enable sharing for playback control

239. Kveðjustund

12/15/2023
Elsku hjartans bestu hlustendur. Hér líður Normið að lokum. ❤️ Við fórum yfir farinn veg, spiluðum ógeððððslega fyndna klippu, ræddum framhaldið og svo var þarna dassss af tilfinningarússíbana. Við eigum erfitt með að skrifa lýsingu hér fyrir þennan þátt, enda hægara sagt en gert að súmma upp 5 ár af snilld með ykkur. Við gátum ekki alveg sleppt af ykkur takinu samt og verðum með klikkað efni í áskrift strax eftir áramót. Skottastu á normid.is og skráðu þig í áskrift með okkur elsku litli plebbaskítur. SEE YA BAYBAY

Duration:01:57:31

Ask host to enable sharing for playback control

238. Halldóra Geirharðs - "Aldrei hætta að vera forvitin"

12/12/2023
Þú finnur nýja þætti í Normið Áskrift! *Prentmiðlar og fjölmiðlar hafa ekki leyfi til þess að skrifa upp úr þessu viðtali nema sérstakt leyfi sé gefið af Halldóru sjálfri* Halldóra Geirharðs hefur verið á bucketlistanum okkar yfir viðmælendur í langan tíma og því er einstaklega vel við hæfi að hún sé okkar síðasti viðmælandi. Margt fólk sem hefur komið til okkar í Normið hefur haft orð á því hversu mikil fagkona og viskubrunnur hún er. Við erum hjartanlega sammála því. Okkur þótti óendanlega vænt um að fá að kroppa í huga Halldóru - njótið vel kæru hlustendur. Þessi fer á dýptina.

Duration:01:19:42

Ask host to enable sharing for playback control

236. "Það er hægt að sigrast á fíkn" - Magdalena Sigurðar

12/1/2023
2012 þurfti Magdalena Sigurðardóttir að horfast í augu við sinn alkóhólisma. Í dag hefur hún verið edrú í 11 ár og er alþjóðavottaður fíkni og fjölskylduráðgjafi ásamt því að starfa hjá Samhjálp. Þetta viðtal hitti okkur beint í hjartað og er okkur virkilega dýrmætur. Hlustum, lærum og förum í gegnum desember með frið í hjarta. ❤️ Þau sem vilja styrkja mikilvægt starf Samhjálpar geta gert það hér.

Duration:01:34:39

Ask host to enable sharing for playback control

235. "Þetta er ekki svona alvarlegt" - Katla Margrét

11/29/2023
Yndislega og hæfileikaríka leikkonan hún Katla Margrét kom í spjall til okkar og vá hvað er gott að spjalla við þetta eðaleintak. Hún hefur auðvitað komið að óteljandi verkefnum, starfar sem leikkona í Borgarleikhúsinu og leikur næst hlutverk í mjöög spennandi seríu sem kemur út eftir áramót og kallast Kennarastofan. Við ræddum leiklistina, skólakerfið, áramótaskaupið, sturlað fyndna sketsa úr Stelpunum og allskonar þar á milli! Njótið elsku hlustendur ❤️

Duration:01:30:00

Ask host to enable sharing for playback control

234. Eyþór Ingi - "Einlægni afvopnar alla gagnrýni"

11/17/2023
Deeejókaðu hvað þessi þáttur er mikið eyrnakonfekt. Við elskum hrá spjöll um mannlegheit sem enda samt einhvernvegin í plebbatöktum og hláturskasti. Eyþór Ingi er auðvitað eitt mesta hæfileikabúnt landsins og var ungur þegar hann byrjaði að leyfa þjóðinni að njóta viðveru sinnar. Kæri hlustandi, við stórgræddum á því hlusta á Eyþór og það munt þú gera líka. NJÓTUM ❤️

Duration:01:47:02

Ask host to enable sharing for playback control

233. Heilsukvíði - Ási sálfræðingur frá Kvíðameðferðarstöðinni

11/14/2023
Mörg finnum við fyrir allskonar kvíða á lífsleiðinni og okkur þótti mikilvægt að ræða aðeins heilsukvíða í samhengi við síðasta þáttinn okkar, viðtal við stofnendur Intuens. Í fyrsta skipti hefur einstaklingurinn öðruvísi vald yfir upplýsingum um eigin heilsu og þess vegna er eðlilegt að velta fyrir sér hvernig áhrif þetta hefur allt saman á manneskjuna. Við ræddum líka félagsfælni og kvíða almennt og hvernig sé hægt að vinna í að losa sig úr vítahringnum sem myndast þegar hausinn fær að hlaupa taumlaust úr á kvíðatúnið. Ási, eða Ásmundur Gunnarsson, starfar sem sálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni og hans áhugasvið liggur meðal annars í þráhyggju og áráttuhegðun. Hann er ekki bara fáránlega fróður um málefnið heldur líka bara mjög skemmtileg manneskja. Úr varð þessi negluþáttur sem flestir verða að hlusta á!

Duration:01:20:21

Ask host to enable sharing for playback control

232. Intuens - Framtíð heilsu þinnar

11/10/2023
Þau Torfi og Steinunn eru meðstofnendur Intuens. Þetta spennandi fyrirtæki býður upp á byltingarkenndar breytingar hvað varðar heilsu og heilbrigðiskerfi þjóðarinnar. Hjá Intuens getur þú bókað þig í heilskanna og fengið að sjá stöðuna á þínum eigin líkama, án þess að þurfa að bíða eftir samþykki annars staðar frá. Þegar kemur að heilsunni, þá er þekking máttur. Intuens er fyrirtæki sem nýtir sér nýjustu segulómtækni, gervigreind og tölvugreiningar frá Philips til að varpa ljósi á ýmsa kvilla og sjúkdóma. Kynntu þér málið á intuens.is eða á intuenshealth

Duration:01:24:16

Ask host to enable sharing for playback control

231. "Alexa, Turn off my brain"

10/31/2023
Í þessum þætti ræðum við hvernig við getum tekist á við hátt Cortisol stig, en cortisol er auðvitað aðal streituhormónið í líkamanum. Hvernig hefur það áhrif á líf okkar í daglegu lífi? Hvernig lítur lífið út þegar það er ekki óregla í taugakerfinu? Hér er á ferð mikilvægur þáttur fyrir þau sem að langar að taka streituna föstum tökum og mögulega finna þetta blessað jafnvægi!

Duration:01:23:10

Ask host to enable sharing for playback control

230. Benni Vals og Fannar Sveins - "Það sem er fyndið, er fyndið."

10/24/2023
Tveir öðlingar mættu með okkur í stúdíóið og úr varð þessi stórkostlegi þáttur. Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson eru þekktir fyrir að framleiða snilld og flest þekkjum við Hraðfréttir sem hristu skemmtilega upp í Kastljósinu fyrir nokkrum árum síðan. Þessa dagana eru þeir meðal annars að vinna að því að framleiða Áramótaskaupið okkar allra - sem undirstrikar hvað þeir eru fáránlega hæfileikaríkir í sínu fagi. Kæru landsmenn, góða skemmtun.

Duration:01:23:57

Ask host to enable sharing for playback control

229. Allir eru smá delulu

10/14/2023
Skoðum hversu veruleikafirrt, eða dululu, fólk getur almennt verið. Við ræddum svokallað "girl math" og "boy math" sem er út um allt á tiktok og öðrum miðlum þessa dagana. En er mögulega sálfræðilegur ávinningur við það að vera delulu? Perhaps maybe. 😏 Svo tókum við lífeyrisrant einhversstaðar um miðjan þátt og smá flug-sköllun í lokin. Bon appetit.

Duration:01:37:05

Ask host to enable sharing for playback control

228. GDRN - "Þessa dagana er ég bara að gera mitt besta"

10/6/2023
*Prentmiðlar og fjölmiðlar hafa ekki leyfi til þess að skrifa upp úr þessu viðtali nema sérstakt leyfi sé gefið af Guðrúnu sjálfri Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem tónlistar-töffara-sleggjan GDRN, kom til okkar í hrátt og skemmtilegt viðtal og mikið var gott að sitja með henni og spjalla um lífið. Njóttu vel kæri hlustandi, þessi er extra ljúfur.

Duration:01:32:11

Ask host to enable sharing for playback control

227. Pressudetox

9/29/2023
Innri pressan, samfélagið, ramminn, reiðin, fáránleikinn... gaaaman. Af hverju förum við ekki bara í gegnum lífið í kyrrðinni og rólegheitunum? Pressan sem við setjum á okkur er stundum svolítið fyndin og mjög oft þreytandi. Skoðum þetta.

Duration:01:36:03

Ask host to enable sharing for playback control

226. Danni Sæberg um missi - “Sterkt hugarfar kemur þér í gegnum hvað sem er”

9/22/2023
Daníel Sæberg hefur gengið í gegnum það sem að við óttumst mörg mest. Hann talar einlægt um barnsmissi og hvernig hann tekst á við sorgina. Þessi þáttur er þess vegna algjör viskubrunnur af fallegum einlægum ráðum og það voru mikil forréttindi að fá að læra af hans sýn á lífið í gegnum þessa erfiðu upplifun. Hugarfarið hans Danna er aðdáunarvert, hlustum og lærum. ❤️ Þú getur fylgst með Danna hér: @dannisaeberg

Duration:01:16:00

Ask host to enable sharing for playback control

225. Hvers vegna ertu að ströggla í lífinu? - Wound Mapping

9/15/2023
Við tókum fyrir svokallað Wound Mapping í þessum þætti. Virkilega áhugaverðar pælingar um hvaða sár stjórna hegðuninni okkar í daglegu lífi. Þú vilt kafa veeeeel í þennan. 🙃 Þetta er klárlega eitthvað sem þú munt vilja glósa. Töst fyrir léttu og ljúfu lífi kæru hlustendur!

Duration:02:04:09