Poppsalin-logo

Poppsalin

Arts & Culture Podcasts

Poppsálin er poppmenningarlegt hlaðvarp með sálfræðilegu ívafi. Fjallað er um ýmis sálfræðileg málefni sem tengjast poppmenningu sem og áhugaverðar rannsóknir og pælingar innan sálfræðinnar.

Location:

United States

Description:

Poppsálin er poppmenningarlegt hlaðvarp með sálfræðilegu ívafi. Fjallað er um ýmis sálfræðileg málefni sem tengjast poppmenningu sem og áhugaverðar rannsóknir og pælingar innan sálfræðinnar.

Language:

Icelandic


Episodes
Ask host to enable sharing for playback control

Heilabilun Bruce Willis og Robin Williams

8/9/2023
Hvað er að gerast hjá Bruce Willis? Á hann mögulega lítið eftir? Hvað kom fyrir Robin Williams? Bruce Willis og heilabilunin, Frontotemporal dementia Robin Williams og þunglyndi og Lewy body dementia

Duration:00:25:13

Ask host to enable sharing for playback control

OCD - Kynferðislegar þráhyggjuhugsanir og fjögurra daga meðferðin

7/31/2023
Í þessum þætti verður fjallað almennt um þráhyggju og áráttu eða OCD. Sérstök undirtegund þráhyggju verður skoðuð eða kynferðislegar þráhyggjuhugsanir eins og gagnvart fjölskyldumeðlimum eða öðrum. Rætt verður við Ásmund Gunnarsson frá Kvíðameðferðarstöð um fjögurra daga meðferð við OCD og árangur þeirrar meðferðar.

Duration:00:50:01

Ask host to enable sharing for playback control

Andrew Tate, Loverboy aðferðin og narsisismi

7/21/2023
TW Rætt er um mansal, narsisisma, kynferðislegt ofbeldi og Andrew Tate Stuttlega farið í mál Andrew Tate, Loverboy mansals aðferðina og við fáum að heyra hljóðbrot af umræðu um narsisisma.

Duration:00:41:20

Ask host to enable sharing for playback control

Sjálfsskaði - Orsakir, birtingarmynd, reynslusögur og bjargráð

7/13/2023
TW Sjálfsskaði - Orsakir, birtingarmynd, reynslusögur og bjargráð Í þessum þætti er fjallað um sjálfsskaða. Fjallað er um hvernig sjálfskaði birtist, mögulegar orsakir, tengsl við aðrar raskanir eins og ADHD og jaðarpersónuleikaröskun. Í þættinum fáum við að heyra reynslusögur og hjálplegar leiðir til að takast á við sjálfsskaða. Þessi þáttur getur verið erfiður fyrir einstaklinga sem eru að glíma við sjálfsskaða og hvet ég alla til að hafa samband við t.d. Hjálarsíma Rauða Krossins 1770, Píeta samtökin 552 2218 eða einhvern sem þú treystir.

Duration:00:51:25

Ask host to enable sharing for playback control

Sértrúarsöfnuðurinn Peoples Temple og fjöldamorðið í Jonestown

7/5/2023
TW - sjálfsvíg, fjöldamorð og ofbeldi Í þessum þætti er fjallað um sértrúarsöfnuðinn Peoples Temple og hræðilega atburðinn sem átti sér stað í Jonestown. Málið verður skoðað frá sálfræðilegu sjónarhorni

Duration:00:48:43

Ask host to enable sharing for playback control

Geta börn fæðst vond? Saga Beth Thomas og fleiri "vondra" barna

6/29/2023
Geta börn fæðst "vond"? Er illskan meðfædd eða getum við alið upp "vond" börn? Vanræksla, heilastarfsemi, munaðarlaus börn og "vonda" stelpan Beth Thomas

Duration:00:28:16

Ask host to enable sharing for playback control

Fyrra líf, endurholdgun og Déjá vu

6/21/2023
Í þessum þætti er fjallað um fyrirbærið Déjá vu sem við mörg upplifum og tengsl þess við sögur barna af fyrra lífi eða endurholdgun.

Duration:00:37:27

Ask host to enable sharing for playback control

Djöflafárið í leikskólum Bandaríkjanna

6/14/2023
Í þessum þætti er talað um mjög viðkvæmt efni, kynferðislegt ofbeldi, bældar minningar og falskar minningar. Fjallað er um djöfladýrkenda faraldurinn eða satanic panic í Bandaríkjunum í kringum 1980 og 1990. Sagt er frá kynferðisafbrotamálum á leikskólum sem urðu að djöflatrúamálum.

Duration:00:44:32

Ask host to enable sharing for playback control

Falskar játningar - Guðmundar- og Geirfinnsmálið

2/7/2023
Í þessum þætti verður farið stuttlega fyrir eitt af þekktustu sakamálum Íslands, Guðmundar og Geirfinnsmálið. Fjallað verður um falskar játningar og sálfræðina bak við slíkar játningar.

Duration:00:52:58

Ask host to enable sharing for playback control

Stanford fangelsis tilraunin - Siðlaus en athyglisverð sálfræðitilraun

12/29/2022
Sumarið 1971 var ein af siðlausustu sálfræðitilraunum allra tíma framkvæmd í kjallara Sálfræðideildar Stanford háskólans. Sálfræðiprófessorinn Philip Zimbardo vildi rannsaka hegðun fólks í fangelsi og breytti því kjallara skólans í sýndarfangelsi og skipti saklausum nemendum skólans í tvo hópa, fanga og fangaverði. Markmiðið var að kanna áhrif aðstæðna á hegðun fólks.

Duration:00:34:07

Ask host to enable sharing for playback control

Frægt fólk í sértrúarsöfnuðum

10/26/2022
Frægt fólk í sértrúarsöfnuðum! Í þættinum er fjallað um fræga einstaklinga sem hafa verið meðlimir í sértrúarsöfnuðum t.d NXIVM, Children of God og fleiri. Þessi þáttur var áður eingöngu fyrir Poppsálar áskrifendur

Duration:00:31:17

Ask host to enable sharing for playback control

Bólusetningar og einhverfa - Stærsta fölsun í sögu vísindanna?

10/26/2022
Árið 1998 birti hið virta tímariti The Lancet vísindagrein eftir lækninn Andrew Jeremy Wakefield þar sem hann hélt því fram að tengsl væru á milli bólusetninga og einhverfu. Margir vilja meina að þetta sé stærsta fölsun í sögu vísindanna. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir vísindamanna til að endurtaka tilraunina og sýna fram á tengsl bólusetninga og einhverfu var aldrei hægt að sanna þessa tilgátu en mýtan um bólusetningu og einhverfu hefur enn ekki náð að deyja út. Þetta er gamall áskriftarþáttur en birtist hér í fullri lengd.

Duration:00:28:17

Ask host to enable sharing for playback control

Persónaleikaraskanir og undirflokkar

10/26/2022
Jaðarpersónuleikaröskun, narsisimi, siðblinda og fleira. Hér er smá aukaþáttur í tengslum við Poppsálarþáttinn um súpermömmuna sem hvarf sem gefinn var út 2. maí.

Duration:00:19:31

Ask host to enable sharing for playback control

Sálskurðlækningar: Siðlausar tilraunir á andlega veiku fólki eða gagnleg úrræði?

10/17/2022
Í þessum þætti er fjallað um sögu sálskurðlækninga, sérstaklega hvítuskurðs eða Lobotomy. Fjallað er um upphaf úrræðisins, markmið þess og afleiðingar. Farið er í það af hverju þessi skurðaðgerð varð svona vinsæl og hvort gagnsemi hennar hafi verið ofmetin. Skoðað verður hve algeng aðgerðin var á Norðurlöndum og sérstaklega af hverju hún varð algeng í Danmörku. Þátturinn er á köflum frekar lýsandi og gæti verið erfiður fyrir suma. (Þetta er gamall þáttur sem áður var eingöngu í boði fyrir áskrifendur)

Duration:00:42:54

Ask host to enable sharing for playback control

Hver er þín týpa? Hrifning og aðlöðun

10/17/2022
Sólrún Ósk sálfræðingur ræðir við Poppsálina um aðlöðun og hrifningu. Erum við með ákveðna týpu? Hvað segja vísindin? Hvað segir Þróunarkenningin? Hvað segir félagssálfræðin um aðlöðun og hrifningu? Þetta er gamall þáttur og var áður eingöngu í boði fyrir áskrifendur Poppsálarinnar. Þátturinn tengist öðrum þætti sem nefnist: Af hverju er ástarsorgin svona sár? Óendurgoldin ást og ástarfráhvörf

Duration:00:20:38

Ask host to enable sharing for playback control

Incels morðin

10/17/2022
Í þessum þætti verður áfram fjallað um Incels og sérstaklega hræðilega atburðarás sem átti sér stað í maí árið 2013 þegar Elliot Rogder ákvað að hefna sín á sætum stelpum. Þessi þáttur var áður eingöngu fyrir Poppsálar áskrifendur og tengist eldri þætti um Incels sem nefnist: "Góði gaurinn" og Incels: "Konur skulda okkur kynlíf"

Duration:00:33:54

Ask host to enable sharing for playback control

Paris Hilton og ofbeldi á unglingaheimilinu

9/8/2022
Smá bónus fyrir Poppsálarhlustendur. Hér fáiði þátt um heimili fyrir "vandræða" unglinga sem ofurstjarnan Paris Hilton var vistuð nauðug á. Undanfarin ár hefur Paris vakið athygli á ofbeldinu sem þrífst á þessum heimilum. Rætt verður um reynslu Paris af svona unglingaheimilum og sagt frá hræðilegu ofbeldi og vanrækslu sem á sér stað á þessum heimilum, sem flest öll eru í Utah í Bandaríkjunum.

Duration:00:29:49

Ask host to enable sharing for playback control

Paris Hilton og ofbeldi á unglingaheimilum í Utah (Áskriftarþáttur)

8/9/2022
Hér fáiði þátt um heimili fyrir "vandræða" unglinga sem ofurstjarnan Paris Hilton var vistuð nauðug á. Undanfarin ár hefur Paris vakið athygli á ofbeldinu sem þrífst á þessum heimilum. Rætt verður um reynslu Paris af svona unglingaheimilum og sagt frá hræðilegu ofbeldi og vanrækslu sem á sér stað á þessum heimilum, sem flest öll eru í Utah í Bandaríkjunum. Þetta er aukaþáttur fyrir áskrifendur Poppsálarinnar. Hægt er að gerast áskrifandi og nálgast fleiri aukaþætti hér: https://www.patreon.com/Poppsalin

Duration:00:05:13

Ask host to enable sharing for playback control

Réttarsálfræðileg greining á Yorkshire Ripper

8/9/2022
Í þessum þætti verður sagt frá áhugaverðri sálfræðigreiningu nemenda í réttarsálfræði í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nemendur áttu að velja sér glæpamann og greina hann samkvæmt kenningum og fræðum réttarsálfræðinnar. Í þessum þætti er sagt frá réttarsálfræðigreiningu nemenda á Peter Sutcliffe, oft þekktur sem Yorkshire Ripper.

Duration:00:18:04

Ask host to enable sharing for playback control

Y2K: Endurkoma 90s tískunnar og heróínlúkksins

8/9/2022
Lokaþáttur Poppsálarinnar (í bili allavega). TW: Átraskanir Í þessum þætti verður fjallað um endurkomu 90s tískunnar eða aldamótatískunnar. Rætt verður um fegurðarviðmið þess tíma og tengslin við gríðarlega aukningu á átröskunartilfellum á tímum Covid-19. Takk kærlega fyrir að hlusta elsku Poppsálar hlustendur. Ef þið hafið áhuga á fleiri þáttum þá má finna um 15 aukaþætti inni á Patreon.com

Duration:00:28:29