Álhatturinn-logo

Álhatturinn

Arts & Culture Podcasts

Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum. Kostar aðeins 1290 kr. á mánuði og þú færð aðgengi að +50 þáttum af hreinni samsæriskenninga snilld 💥 ➡️ Áskriftarhlekkurinn: https://pardus.is/alhatturinn

Location:

United States

Description:

Þrír vinir með enga sérfræðiþekkingu ræða samsæriskenningar á vitrænum og glórulausum nótum. Kostar aðeins 1290 kr. á mánuði og þú færð aðgengi að +50 þáttum af hreinni samsæriskenninga snilld 💥 ➡️ Áskriftarhlekkurinn: https://pardus.is/alhatturinn

Language:

English


Episodes
Ask host to enable sharing for playback control

Mannkynið hefur komið upp leynilegum bækistöðvum á mars og tunglinu

2/20/2026
Í þessum þætti af Álhattinum kafa Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í eina frumlegustu og furðulegustu samsæriskenningu samtímans. Hugmyndina um að mannkynið hafi í áratugi rekið háleynilegt geimáætlunarverkefni, komið upp bækistöðum á Mars og tunglinu og þjálfað svokallaða ofurhermenn(e.supersoldiers) til að þjóna í leynilegum geimhernaði. Er hugsanlegt að bandarísk yfirvöld, í samstarfi við önnur stórveldi og jafnvel einkafyrirtæki, hafi byggt upp heilan skuggaveruleika utan almennrar vitundar? Er til “Secret Space Program” sem starfar utan NASA, utan hefðbundinna hernaðarstofnana og utan fjárlaga sem nokkur kjörinn fulltrúi fær að sjá? Í kenningunum er talað um börn sem séu valin ung að aldri, þjálfuð í háþróuðum og leynilegum hernaðarverkefnum, send út fyrir jörðina og svo “aldursendurstillt” og skilað aftur inn í samfélagið án minninga. Það er talað um samninga við framandi lífverur, herstöðvar neðanjarðar og utanjarðar, og að tæknin sem við sjáum opinberlega sé aðeins brotabrot af þeirri tækni sem raunverulega sé til. Þeir félagar fara yfir helstu frásagnir og nöfn sem hafa haldið þessari hugmynd á lofti, greina hvað á að vera skjalfest og hvað byggir eingöngu á einhverskonar vitnisburði eða frásögn einhverra mis traustvekjandi eða trúverðugra aðilla. Hvað er raunveruleg hernaðarleynd, hvað er vísindaskáldskapur í dulargervi, og hvenær verður samsæri svo stórt að það hrynur undan eigin þunga? Eru sögurnar um Mars-bækistöðvar og tungl herstöðvar bara fantasía sem lifir góðu lífi á netinu? Eða gæti verið að geimkapphlaupið hafi aldrei hætt, það hafi einfaldlega farið undir yfirborðið og verið sópað undir teppið fjarri vökulum og forvitnum augum almennings? Hvernig tengist þetta allt saman nasistum, the Dracos og mögulega vampírum, klónum eða varúlfum? Og hvað í veröldinni eru Supersoldiers eða Lightwarriors? Þetta og margt fleira í þessum þætti af Álhattinum þar sem þeir velta fyrir sér þeirri spurningu hvort mannkynið hafi komið upp bækistöðvum eða herstöðvum á fjarlægum plánetum(amk Mars og Tunglinu) án vitundar almennings. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Duration:00:27:37

Ask host to enable sharing for playback control

P2: Geimverur hafa heimsótt jörðina og yfirvöld hylma yfir tilvist þeirra | Hluti 2

2/5/2026
Í þessum þætti af Álhattinum halda Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór áfram þar sem frá var horfið og taka aftur fyrir stóru spurninguna sem enginn virðist mega, vilja eða geta svarað almennilega. Hafa geimverur heimsótt jörðina og eru yfirvöld að hylma yfir tilvist þeirra? Frá síðasta þætti hefur margt vatn runnið til sjávar og tíðarandinn verið dulítið skrýtinn. Hugtakið UAP hefur tekið við af UFO, herinn og allskonar dularfullar stofnanir hafa neyðst til að viðurkenna að eitthvað óútskýrt sé á sveimi og svo hafa menn með allskonar skírteini, vottanir, gráður hernaðarferil og “trúnaðarupplýsingar” stigið fram og hljómað eins og mestu Álhattar eða illa skrifaðar persónur í ótrúverðugri vísindaskáldsögu. Undarleg óútskýranleg fyrirbæri, stórfurðuleg hegðun radarskjáa, óskýr og gruggug myndbönd sem þó eru ekki jafn óskýr og áður og kerfi sem virðist vera hannað til að tryggja að enginn fái neitt endanlegt eða afgerandi svar. Sama hversu mergra spurninga er varpað fram eða hversu merkilegir pappírar einstaklingarnir eru, sem spyrja þeirra. Hvað í veröldinni er eiginlega í gangi!? Strákarnir fara yfir þingmannayfirheyrslurnar og vitnisburðinn sem setti internetið á hliðina, hvað var sagt, hvað var ekki sagt og hvers vegna þetta endar alltaf ‘a s-mu g-mlu tuggunni: “Við getum hvorki staðfest neitt né afneitað neinu” Þeir félagar ræða líka mótrökin, þar sem bent er á að leyndarhyggja og óljósar yfirlýsingar geti allt eins verið merki um jarðneska tækni í þróun, óvandaðar ályktanir, rangtúlkun eða klassískt psyop sem á að láta almenning elta ljósbletti á himninum í örvæntingu til þess að athyglin beinist ekki að einhverju merkilegra og mikilvægara eins og td Epstein skjölunum. Hvað varð t.d um alla drónana sem virtust svífa um í tuga eða hundraðavís alls staðar og hvergi.. Dularfull flýgildi við herstöðvar, orkuver og viðkvæma innviði, er þetta nýtt og hátæknilegt njósnakerfi, heræfing eða eitthvað sem á ekki að sjást? Eru þetta Kínverjar, Rússar eða jafnvel einkaaðilar? Eða einfaldlega tilraunir yfirvalda? Eða sama gamla sagan í nýjum búningi þar sem “ógnin” er notuð til að réttlæta meiri leynd, meiri fjárframlög og færri spurningar? Þetta og svo margt, margt fleira í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem þeir félagar velta fyrir sér fullyrðingu sem margir hæðast að, en aðrir hræðast að sé sönn, að geimverur hafi heimsótt jörðina og yfirvöld hylmi yfir tilvist þeirra. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Duration:00:22:47

Ask host to enable sharing for playback control

Æðstu ráðamenn í Minnesota eru viðriðnir milljarða svikamyllu í fylkinu

1/23/2026
Í þessum þætti af Álhattinum kafa þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í það sem sumir kalla “Minnesota svikamylluna”(e.minnesota scam). Barnagæsla sem virðist sífellt vera lokuð eða er í það minnsta með gluggum þökktum dökkum dúkum með engin raunveruleg ummerki um börn. Tugir meintra heilbrigðisþjónusta og góðgerðarstofnana, sem eru að öllum líkindum skúffufyrirtæki, skráð til húsa í sömu byggingu. Flutningaþjónusta sem á á pappír að vera burðarás kerfisins, en virðist í raunheimum vera draugafyrirtæki. En er þetta raunverulega þaulskipulagt samsæri, eða bara kerfisbundin vanhæfni, sem fékk að blómstra og grassera vegna þess að enginn þorði að spyrja spurninga eða benda á að keisarinn væri ekki í neinum fötum? Hvernig geta milljónir dollara runnið til “þjónustu” sem enginn sér eða veit hvort að er í raun til? Hvernig gat eftirlitið brugðist ítrekað aftur og aftur? Eru þetta einangruð tilvik eða mynstur sem birtist þegar opinbert fé, eftirlitslausir einkaaðilar og veik stjórnsýsla mætast? Og svo stóra spurningin sem enginn virðist vilja svara, án þess að æsa allt upp: Af hverju virðist umræðan beinast svona oft að sómalska samfélaginu? Er það vegna þess að öll spjót beinast þangað, eða vegna þess að pólitík og fjölmiðlar kunna að græða á “réttum” sökudólgum? Er þetta kannski allt saman bara kynþáttahyggja og fordómar hvítra miðaldra karla? Hverjir raunverulega græða, hverjir tapa, og hverjir þegja vísvitandi? Og ef þetta er “viljandi” frekar en “óvart” … hverjum þjónar það? Hverjir græða á þessu? Spilltir stjórnmálamenn? Tim Walz? Stjórnvöld í Sómalíu? Þetta og svo margt, margt fleira undarlegt og áhugavert í nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem strákarnir reyna að átta sig á því hvað í veröldinni sé eiginlega í gangi í Minnesota og spyrja sig þeirrar mikilvægu spurningar hvort að yfirvöld í Minnesota séu viðriðin milljarða dollara svikamyllu í fylkinu, sem stundum hefur verið nefnt Sómalíusvindlið. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Duration:00:25:03

Ask host to enable sharing for playback control

P4: Jeffrey Epstein er á lífi | Hluti 4

1/9/2026
Nýlega birti dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna fjöldan allan af skjölum tengdum viðurstyggðinni og viðrinu Jeffrey Epstein, vitorðsmönnum hans og viðbjóðnum sem þeir frömdu á eyju hans, í flugvél hans og víðar. Fjöldi og umfang yfirstrikana í skjölunum hefur vakið undrun og ugg meðal margra og fólk veltir því fyrir sér hvað sé eiginlega verið að fela og hverja sé verið að vernda. Er einungis verið að verja fórnarlömb eða heldur einhverskonar verndarengill hlífiskildi yfir áhrifamiklum og valdamiklum einstaklingum? Í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, sem er sá fjórði sem fjallar um málefni Jeffrey Epstein, skoða þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór málið út frá hlið sem hefur lengi verið á sveimi en lítið verið tekin alvarlega í meginstraumsmiðlunum. Getur verið að Epstein sé enn á lífi? Ef skjölin eru birt í nafni gagnsæis, af hverju eru þá heilu kaflarnir þaktir svörtu bleki?. Hvers vegna eru nöfn, tengingar og lykilatriði afmáð úr skjölunum? Hvað veldur því að almenningur fær einungis að sjá síður sem skilja eftir fleiri spurningar en svör? Og ef þetta er gert til að vernda saklaus fórnarlömb, hvers vegna virðist leyndin fyrst og g fremst henta þeim sem hafa mestu að tapa við birtingu skjalanna og þeim sem hafa hvað mest að fela? Hver hefði mestan hag af dauða Epstein? Hverjir græða mest á eilífri þögn han og því að hann geti aldrei bent á aðra eða dregið viðbjóðinn fram í dagsljósið?. Svo erþað hin spurningin. Hver hefði hugsanlega hag af því að falsa dauða hans? Var Epstein of hættulegur til að lifa frjáls, en of verðmætur til að vera látinn deyja? Getur verið að yfirvöld sjálf hefðu hagsmuni af því að láta hann hverfa af sjónarsviðinu. Ekki til að sleppa honum, heldur til að ná utan um málið, rannsaka það án sýnilegs þrýstings og fá hann til að tala á bak við luktar dyr? Til að byggja mál á þeim sem sátu ofar í keðjunni. En ef svo er, hvað er þá verið að undirbúa og hvers vegna er almenningur látinn horfa á yfirstrikaðar síður í stað yfirgripsmikillar afhjúunnar? Þetta og svo margt margt fleira í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem þeir félagar kafa ofan í nýju skjölin, yfirstrikanirnar, leyndina og þá skuggalegu spurningu hvort Jeffrey Epstein sé enn á lífi. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Duration:00:21:43

Ask host to enable sharing for playback control

Guðjón Heiðar er Psyop

12/26/2025
Guðjón Heiðar Valgarðsson, borgarstjóra Samsæríu og Álhatt allra álhatta, þarf vart sérstaka kynningu meðal álhugafólks um samsæri. Í hugum margra er hann orðinn eins konar samnefnari fyrir samsæri og opinber fulltrúi íslenskra samsærissinna. Maðurinn sem stendur á horninu með gjallarhornið í hendi og reynir að vara grunlausan almenning við öllu því skuggalega sem gerist bakvið tjöldin. Hann hefur talað um 11. september, Íraksstríðið, innrásina í Lýbíu, fall Gaddafis, peningakerfið, hlýnun jarðar, covid og óteljandi önnur hitamál sem flestir almennir borgarar kjósa algerlega að hundsa. Allt í nafni þess sem hann kallar réttlæti og sannleiksleit. Hann var meðal þeirra fyrstu hérlendis sem gagnrýndu samkomutakmarkanir og sóttvarnaráaðgerðir í Covidinu. Hann var með Epstein málið á vörunum áður en almenningur vissi hver sá maður yfir höfuð væri. Hann stóð fremstur í broddi fylkingar í búsáhaldabyltingunni, beitti RÚV þrýstingi til að sýna Zeitgeist Addendum, sem þeir svo gerðu og kastaði snjóbolta í Jón Ásgeir eins og frægt er orðið. Sumum fannst hann táknmynd mótmælanda og anarkista. Aðrir sáu bara ruglaðan gaur með mikinn hávaða. Enn aðrir litu á hann sem athyglissjúkan trúð. Svo líður tíminn og eitthvað breytist. Sami maður og áður var áður flokkaður í hóp róttækra stjórnleysingja, þá frekar vinstra meginn línunnar, sem barðist gegn NATO, nýfrjálshyggju og alþjóðlegum valdablokkum er í dag farinn að dásama Donald Trump og Miðflokkinn, auk þess sem hann kallar aðgerðir í loftslagsmálum plott leynilegrar valdaklíku til að ná heimsyfirráðum. Hvað gerðist eiginlega? Er Guðjón einfaldlega enn eitt skólabókadæmið um gamla síendurtekna sögu, um ungan róttækan vinstri mann mann sem eldist, þroskast og mýkist í sumu, harðnar í öðru og færist hægt og rólega frá róttæku vinstri yfir í íhaldssamt hægri? Er það bara það að svokallaðar samsæriskenningar Trump og Miðflokksins eigi við rök að styðjast og hann sé ennþá, eins og áður bara í einlægri leit að sannleikanum, tilbúinn að standa upp fyrir málsstöðum sem almenningur sér sem óvinsæl eða skammarleg. Eða er eitthvað mun vafasamara og óhugnanlegra í gangi? Er einhver að stýra Guðjóni á bakvið tjöldin eða er hann sjálfur að spinna psyop á allt samfélagið með því að gera álhatta að samheiti yfir ruglumbull, tóma tjöru og vitleysu. Eða erum við einfaldlega að horfa á mann sem hefur alltaf verið eins og hinar meintu nýju skoðanir ekki kúvending heldur ný einfaldlega birtingarmynd eða önnur hlið á sama gamla peningnum? Í þessum þætti af Álhattinum velta þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór því upp hvort Guðjón sé raunverulegur Álhattur eða undirförull og útsmoginn leppur hulduaflanna (e.psyop). Hvort hann sé ósérhlífinn sannleiksleitandi, sem sannleiksleitin leiddi á þessar óvæntu slóðir eða hvort hann sé búinn að hafa okkur öll að háði og spotti, í einhverju í stærra leikriti, þar sem hann gefur sig út fyrir að vera „borgarstjóri Samsæríu“ en handritið er í raun skrifað annars staðar á bakvið tjöldin af Skuggavaldinu. Þetta og svo margt margt fleira áhugavert, undarlegt og skemmtilegt í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem þeirri spurningu er velt fyrir sér hvort að Guðjón Heiðar sé í raun leiksoppur og leppur hulduaflanna(e.Psyop) Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Duration:00:21:43

Ask host to enable sharing for playback control

Michael Jackson var hafður að rangri sök og var ekki barnaníðingur

12/12/2025
Michael Jackson þarf vart að kynna fyrir nokkrum.. Barnastjarnan úr Jackson 5 sem skein, líkt og Betlehemstjarnan, skærast allra stjarna. Hann skaust fram á sjónarsviðið eins og eldibrandur á barnsaldri og heillaði heimsbyggðina með bræðrum sínum og systrum. En þó Jackson 5 nytu hylli almennings þá var það ætíð Michael sem lýsti upp stjörnuhiminn og þaut um himinskautin líkt og halastjarna. Hann tók að endingu alfarið yfir sviðið og varð að stærstu poppstjörnu allra tíma. Sannkallaður og óumdeildur konungur poppsins. Thriller, Bad og Dangerous seldust í bílförmum og ruku út allstaðar eins og heitar lummur. Tónlistarmyndböndin voru stórfengleg og íburðamikil líktog óskarsverðlaunamyndir og einstakur dansstíllinn mótaði heila kynslóð. Líklega besti söngvari og dansari síons tíma, ef ekki allra tíma Á sama tíma fjarlægðist hann sífellt hið hefðbundna líf, breyttist gífurlega í útliti og dvaldist sífellt meira í lokuðum heimi aðdáenda, öryggisvarða og ráðgjafa. Michael Jackson varð að einhverskonar flókinni blöndu af barnastjörnu, ofurviðkvæmum listamanni og sérlunduðum og mislyndum furðufugl,i sem virtist ekki finna sinn stað í heimi fullorðinna. Á móti koma grófar og alvarlegar ásakanirnar og þeir sem setja Jackson í hlutverk geranda. Chandler fjölskyldan sem lýsir kynferðislegri misnotkun, fer fyrst allra til lögfræðings og ræðir um bótaupphæðir áður en lögregla eða barnavernd koma að borðinu. Þetta og svo margt margt fleira bæði óhugnalegt og áhugavert í þessum þætti af Álhattinum, þar sem góð vinirnir Guðjón Heiðar og Haukur Ísbjörn aka fyrir þá fullyrðingu að Michael Jackson hafi verið saklaus af ásökunum um barnaníð. Þeir fara vandlega yfir feril hans, persónuleika, Neverland og ásakanirnar sem komu fram á mismunandi tímum, skoða sögurnar frá sjónarhorni meintra fórnarlamba, frá sjónarhorni varnaraðila, lögreglu, fjölmiðla og plötu iðnaðarins. Þeir spyrja líkt og alltaf áður hverjir séu að gera hvað, hvernig og hversvegna, og velta vandlega fyrir sér hvað það sé sem styður við sakleysi og hvað styður sekt, án þess að fella endanlegan dóm. Markmiðið Álhattsins er ekki að hreinsa nafn eða hengja mann, heldur að rýna í öll helstu gögn málsins og draga þau fram í dagsljósi því Álhatturinn er alltaf leitandi og alltaf spyrjandi en Álhatturinn fellir aldrei endanlegan dóm. HLEKKIR Á ÍTAREFNI: https://youtu.be/rCy_wPTW_Ww?si=F8IQ51A6K8udBgULhttps://youtu.be/yBw-t37co2Q?si=EpcoKze8ER4GSMpAhttps://youtu.be/VC7OT90_nG0?si=N9UvtdwfjDuWFoCxhttps://youtu.be/SRAhsLnhenE?si=rTH1oahyveGJK_mPhttps://youtu.be/4QqoFYwFq9s?si=5N5cX_9MCVHnZGemhttps://youtu.be/-_452akeOkU?si=M1kwc8LFuGjgIDc4https://youtu.be/fXf3uXDTRsk?si=x-M4yLzXXeyBBJfSSupport the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Duration:00:25:18

Ask host to enable sharing for playback control

P2: Allt sem þú telur þig vita um Suðurskautslandið er lygi | Hluti 2

11/28/2025
Suðurskautið hefur lengi verið sveipað mikilli dulúð og leyndardóm sem vakið hefur forvitni og furðu margra. Þetta ógnarstóra landsvæði sem er að mestu leyti hulið ís er óðafjarri öðrum löndum og svo virðist sem enginn búi á þessu annars gríðarstóra og auðuga landsvæði. Þó svo að þó nokkur lönd hafi reynt að gera tilkall til þess að eignast landið virðist svo vera sem að á einhverjum tímapunkti hafi þessi lönd öll sammælst um að ekkert þeirra mætti eiga Suðurskautið og þar mættu einungis útvaldir aðilar dvelja til skamms tíma í rannsóknarskyni. Ferðir almennings til Suðurskautsins eru nánast bannaðar eða verulega takmarkaðar og svo virðist sem nánast sé ólöglegt að fljúga yfir tiltekin hluta jökulsins. Þá hafa huldir eða skyggðir blettir af svæði á google maps vakið undrun og forvitni Álhatta og íbúa Samsæríu og velta einhverjir því fyrir sér hvað sé eiginlega verið að fela undir ísnum eða á pólnum sjálfum. Admiral Byrd, sem er alls ekkert skyldur körfubolta manninum Larry Bird, fullyrti að hann hafi séð leynilega hurð eða op inn í gríðar stóran hulinn heim undir ísnum og nýlegar radar myndir staðfesta að svo virðist sem stórt og mikið lífríki og heill heimur með ám, fossum fjöllum og vötnum sé að finna undir ísnum. Þetta hefur enn frekar rennt stoðum undir kenningar álhatta um að ekki sé allt með felldu á Suðurskautinu og að mögulega sé verið að ljúga að okkur um hvað sé þar að finna. Í þessum síðari hluta Álhattarins um Suðurskautið halda Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór áfram að kafa djúpt ofan í kanínuholu heimskautakenninga og velta því fyrir sér hvort að allt sem að við teljum okkur vita um Suðurskautið sé mögulega bara þvættingur lygi. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Duration:00:27:17

Ask host to enable sharing for playback control

P1: Allt sem þú telur þig vita um Suðurskautslandið er lygi | Hluti 1

11/14/2025
Það má vera að sumir kunni að halda að Suðurskautslandið sé ekkert annað en auðn, ís og mörgæsir. En svo eru til þeir sem trúa því staðfastlega að mikil leyndarmál og heill huliðsheimur sé falin á suðurskautinu og að aðgengi að Suðurpólnum sé jafn takmarkað og það er til þess að fela risastór leyndarmál sem eru talin hættuleg almenningi. Huldar stórborgir falinna heimsvelda, gífurlega tæknivæddar herstöðvar eða bækistöðvar nasista og jafnvel heilt samfélag geimvera eða einhverskonar stökkbreytts eðlufólks og elíutunnar er allt sagt að sá mögulega undir ísnum. Svo eru það flatneskjufræðingarnir sem vilja meina að þarna sé ekkert annað en risastór ísveggur eða einhverskonar endimörk jarðarinnar eða alheimsins. Nýlegar rannsóknir staðfesta að undir ísnum er heill heimur með ár, vötn og fossa og jafnvel lífríki sem mögulega hefur varðveist í hundruðir ef ekki þúsundir ára. Þá eru vísbendingar um að Suðurskautslandið hafi fyrir þúsundum ára verið skógi vaxið og gróðursælt land þar með gríðarlega fjölskrúðugt og fjölbreytt lífríki. Eru einhver þessara dýra enn á lífi undir ísnum, í einhverskonar hindurveröld? Getur virkilega verið að á pólnum sé hurð sem leiðir inn í holrými jarðar? Er allt tal um kjarna, jarðskorpu og möttul kannski bull og jörðin okkar gal tóm að innan? Hvaðan kemur þá hraunið sem vellur upp úr jörðinni á Reykjanesi og hinum eldfjöllunum á Íslandi? Er Eyjafjallajökull kannski bara plat? Í þessum nýjasta þætti af Álhattinum kafa þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór djúpt ofan í kanínuholuna og stinga höfðinu á bólakaf í hyldýpi aragrúans af samsæriskenningum er snúa að Suðurskautslandinu. Flúðu nasistar til suðurskautsins þar sem þeir búa í velsæld í leynilegum bækistöðvum undir ísnum? Eða er hátæknivætt samfélag háþróaðra geimvera eða eðlufólks eitthvað að brasa og bralla undir ísnum? Hversvegna eru svo mörg stórveldi og lönd með herstöðvar og rannsóknarstöðvar á pólnum? Hví er aðgangur almennings takmarkaður og er eitthvað til í því að bannað sé að fljúga yfir suðurskautið og hvað eru yfirvöld þá að fela fyrir almenningi? Þetta og svo margt, margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem þeir vinirnir skeggræða þá áhugaverðu samsæriskenningu að allt sem við teljum okkur vita um Suðurskautslandið sé lygi. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Duration:00:24:56

Ask host to enable sharing for playback control

Ísraelar vissu af yfirvofandi áras Hamas 7. október og leyfðu henni að gerast

10/31/2025
Hryðjuverkaárásir Hamas á Ísrael 7.Október 2023 eru einn svívirðilegasti og grimmilegasti gjörningur seinni tíma, ef ekki sögunnar. Þar sem fjöldinn allur af blásaklausum borgurum allt frá ungabörnum til gamalmenna var myrtur á hrottafneginn og viðrustyggilegan hátt af blóðheitrum öfgamönnum. Allt í nafni trúar. Síðan þá hafa geysað gífurleg átök á Gaza sem hafa kostað gífurlegt magn mannslífa úr báðum fylkingum. Átökin virðast bara ágerast og ágerast og ekki einu sinni Bandaríkin eða Trump virðast geta miðlað málum eða stuðlað að friði eða miðlað málum. Gereyðingin á Gaza er gífuleg og ekki sér fyrir endann á þessum viðbjóðslegu og tilgangslausu blóðsúthellingum og stríðsátökum. En hvað ef koma hefði mátt í veg fyrir þetta allt saman? Hvað ef Ísraelsmenn vissu af yfirvofandi árásum Hamasliða með góðum fyrirvara en kusu af einhverjum ástæðum ekki að aðhafast neitt til að stöðva þær? Hvaða ástæður gætu Ísraelsher og ísraelska ríkisstjórnin haft til þess að hunsa aðvaranir og leyfa slíkum voðaverkum að gerast? Getur verið að nokkurt ríki standi bara aðgerðalaust hjá á meðan óvinir murka lífið úr þegnum þess? Og ef svo er hvaða ástæðu gæti ríkið eða ríkisstjórnin haft til þessa að leyfa slíkum viðbjóði að gerast á sinni vakt? Í þessum nýjasta þætti af Álhattinum kafa vinirnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ofan í atburði 7.Október 2023 og kynna sér þá áhugaverðu kenningu að Ísraelsk yfirvöld hafi vitað af árásunum fyrirfram en vísvitandi ákveðið að aðhafast ekkert til þess að koma í veg fyrir þær og þess í stað sitja aðgerðarlaus og leyfa þeim að gerast. Hvaða hugsanlegan hag gætu ísraelsk yfirvöld haft af slíku aðgerðarleysi og hversu trúverðugt er það að nokkur stjórnvöld séu tilbúin að fórna eigin þegnum í einhverju ímyndar eða almannaálits -stríði? Þetta og margt margt fleira skringilegt og áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem félagarnir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta því fyrir sér hvort Ísraelsmenn hafi hugsanlega fræðilega kannski vitað af fyrirætlunum Hamas 7. október fyrirfram og af einhverjum ástæðum kosið að aðhafast ekkert. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Duration:00:24:46

Ask host to enable sharing for playback control

Fyrirboðum um áform hulduaflanna er plantað í dægurmenningu áður en þau raungerast (e. Predictive programming)

10/17/2025
Í þessum nýjasta þætti af Álhattinum ræða Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór áhugavert fyrirbæri sem kallað hefur verið forvirk forritun(e.predictive programming), þar sem dægurmenning virðist spegla eða jafnvel undirbúa almenning fyrir atburði áður en þeir raungerast. Sagan er þannig ekki einungis skrásett og skjalfest af sagnfræðingum heldur einnig skrifuð og skipulögð af handritshöfundum, leikstjórum og fréttastofum sem móta sameiginlega sýn almennings á heiminn í gegnum undirmeðvitundina. Þeir félagar fara yfir dæmi sem hafa vakið upp stórar spurningar og mikla undran. Þá kannski sér í lagi meðal Álhatta. Í The Lone Gunman birtist td árás á World Trade Center mánuðum fyrir 11. September, þar sem markmiðum yfirvalda um nauðsyn þess að að finna nýja ógn eða óvin eftir endalok kaldastríðsins er lýst í smáatriðum. Í BBC Panorama: London Under Attack var dregin upp sviðsmynd samhæfðra sprenginga í neðanjarðarlestum Lundúna, sem endurspeglaði atburðina 7. júlí 2005 af ótrúlegri nákvæmni. Áður en sprengingarnar áttu sér stað. Í kvikmyndinni Contagion birtist svo farsótt sem virðist óhugnanlega keimlík COVID-19. Eru þetta aðeins ótrúlega óheppilegar tilviljanir, einhverskonar sammannlegt innra innsæi eða markviss sáðsetning hugmyndafræðilegra fræja í hugum fólks? Er kannski hægt að venja heilar þjóðir við ógnir og eftirlit með því að sýna ógnirnar nógu oft í skáldskap? Munum við frekar samþykkja aukið eftirlit og skert frelsi og réttindi ef við höfum séð það í dægurmenningu okkar? Normaliserar dægurmenningin kúgun og eftirlit svo yfirvöld þurfi ekki að eyða orku í það? Hversu stórt hlutverk leikur dægurmenningin í að móta afstöðu okkar og skoðanir? Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór kanna mörkin milli lista og valds og velta því fyrir sér hver sé munurinn milli þess að segja sögur og að stjórna frásögninni. Þeir skoða hvort dægurmenningin sé aðeins spegill samtímans eða verkfæri til að móta framtíðina. Erum við að lesa of mikið í tilviljanir eða er um kerfisbundið mynstur að ræða, sem mögulega er ætlað til þess að forrita okkur? Kannski er forvirk forritun ekki spádómur, heldur hluti af leikriti þar sem við öll leikum hlutverk án þess að vita af því eða hafa veitt samþykki fyrir því. Þetta og svo margt margt fleira í þessum nýjast þætti af Álhattinum þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta því fyrir sér hvort að fyrirboðum um áform hulduaflanna sé plantað í dægurmenningu okkar áður en atburðir raungerast(e.predictive programming). HLEKKIR Á ÍTAREFNI: Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Duration:00:29:13

Ask host to enable sharing for playback control

P2: Morðið á Charlie Kirk er plott til að koma af stað borgarastyrjöld í Bandaríkjunum | Hluti 2

10/3/2025
Kæru Álhattar! Álhatturinn er kominn yfir á Pardus Hlaðvarps samfélagið og alla þætti má finna á eftirfarandi slóð: Við munum halda áfram að setja teasera fyrir þættina á Spotify og Apple en fyrir þau sem vilja heyra okkur kryfja málefnið til mergjar þá eru þættirnir fullri lengd á Pardusnum. Bestu kveðjur, Guðjón, Haukur og Ómar ---- Charlie Kirk var ekki bara einhver gaur með sterkar skoðanir og hlaðvarp. Hann var táknmynd heillar kynslóðar ungs íhaldsfólks. Strákur úr úthverfi Chicago sem hætti háskólanámi til að stofna Turning Point USA, samtök sem börðust gegn því sem hann kallaði woke-heilaþvott og vinstri slagsíðu í bandarískum háskólum. Fyrir sumum var hann hetja sem sagði það sem aðrir þorðu ekki að segja. Fyrir öðrum var hann ógn og rödd sem kynti undir tortryggni og fordóma. En höfðu jafn mikla ástríðu fyrir rökræðum og stjórnmálaumræðu og Charliei. Hann átti eldheita og dygga stuðningsmenn en líka blóðheita andstæðinga sem gjörsamlega hötuðu hann, einungis vegna skoðana hans. Fólk sem að var við það að froðufella af reiði í hvert sinn sem Charlie leyfði sér að tjá sig um sín hjartans mál. Charlie var heldur ekkert heilagt þegar kom að rökræðum og var til í að ræða um öll málefni hvar og hvenær sem er. Hann viðraði skoðanir sínar ítrekað og óheflað jafn þegar almenningur eða erlend öfl töldu þær ekki réttar eða heppilegar. Svo á björtum september degi í Orem í Utah var hann skotinn til bana af leyniskyttu, á viðburði sem Turning Point stóð fyrir þar sem byssueign almennings var eitt af umræðuefnunum. Viðburðurinn er tekinn upp frá öllum sjónarhornum, sendur út í beinni og dreifist um netið á ógnarhraða. Líkt og eldur í sinu. Og líkt og hendi sé veifað vöknuð strax grunsemdir á netinu. Var þetta bara einmanna veikur einstaklingur með byssu eða hluti af einhverju stærra plotti? Hvað ef erlent óvinaríki eða stór erlend leyniþjónusta stóði á bakvið morðið? Bandaríkin eiga vissulega marga óvini en hvað gæti Charlie hafa sagt eða gert til þess að kalla fram slík viðbrögð?Í þessum síðari þætti af Álhattinum um hræðilegt morð Charlie Kirk velta strákarnir því fyrir sér hvort að ísraelska leyniþjónustan hafi mögulega skipulagt morðið. Allt þetta og margt fleira í þessum nýjasta þætti Álhattarins þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór velta því fyrir sér hvort morðið á Charlie Kirk hafi verið plott til að kveikja borgarastyrjöld í Bandaríkjunum Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Duration:01:20:03

Ask host to enable sharing for playback control

P2: Við búum í hermiveröld (e. simulation) og raunveruleiki okkar er sýndarveruleiki | Hluti 2

8/21/2025
Hvað ef veruleikinn er ekki raunverulegur og við sitjum föst í meingallaðir hermiveröld? Í þessum síðari þætti Álhattsins um hermiveröldina og sýndarveruleikann kafa strákarnir enn dýpra ofan í kanínuholuna og draga fram stórfurðuleg og fremur ótrúleg dæmi sem virðast benda til þess að kóðinn sjálfur sé farinn að hiksta. Eins Brady Feigl og Brady Feigl, hafnabolta mennirnir tveir með sama nafn og sama útlit sem fóru meiraðsegja í sömu skurðaðgerð hjá sama lækni án þess að vera skildir eða tengjast á nokkurn hátt. Eða sagan sem sögð er í Three Identical Strangers, þar sem þrír ókunnugir menn sem þykja furðulega líkir komast að því að þeir eru þríburar. Svo er það Laura Buxton sem sleppti blöðru sem endaði í höndum annarrar tíu ára stúlku með sama nafn. Tilviljun? Eða villa í gagnagrunni alheimsins? Tsutomu Yamaguchi, maðurinn sem lifði af bæði Hiroshima og Nagasaki. Ótrúleg tilviljun eða bara óvenjulega óheppinn gæi. Galli í forrituninni? Svo eru það ótrúleg líkindi með morðunum á Abraham Lincoln og Henry Ford. Dæmin úr sögunni eru mýmörg og hvert öðru ótrúlegra og furðulegra. Erum við frjálsar manneskjur í raunveruleikanum eða forrit í buggy tölvuleik sem enginn er lengur að viðhalda? Í þessum seinni hluta hermiveröldarþáttarins fara Guðjón, Haukur og Ómar í gegnum frægustu tilvikin og vega og meta hvort þau séu bara tilviljanir eða sönnun þess að við búum í illa forrituðum sýndarveruleika og hermiveröld. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Duration:02:03:10

Ask host to enable sharing for playback control

P2: Leynileg klíka stefnir að New World Order eða hinni nýju heimsskipan | Hluti 2

8/8/2025
Í þessum síðari hluta um hina svokölluðu nýju heimsskipan, e:New World Order, halda þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór lengra ofan í kanínuholuna og skoða djúpt ofan í kjölin á kenniingunni. Hvað er eiginlega málið með alla þessa undarlegum fundi duldra áhrifavalda með skrýtna framtíðarsýn sem virðist ætluð okkur öllum án þess að nokkur hafi nokkurn tíma spurt okkur álits eða að kosið hafi verið um hana. Fundir á borð við Bilderberg, WEF, Club of Rome og Trilateral Commission hafa lengi verið á radar Álhatta en færri vita hvað fer þar raunverulega fram. Enginn fréttaflutningur, engar upptökur, engin dagskrá opin almenningi og samt virðast ríkisstjórnir heimsins fylgja ákvörðunum þesssara funda eftir í blindni í kjölfarið eins og ekkert sé sjálfsagðara. Strákarnir velta því fyrir sér hvernig það getur staðist að ókjörin samtök og „ráðstefnur“ með fín og viðkunnaleg nöfn og glansmyndir geti haft svo mikil áhrif á allt frá loftslagsmálum og hagkerfi til lýðheilsu, menntunar og jafnvel mataræðis. Hver er það sem ákveður að allir eigi að vera með stafrænt auðkenni og fá kolefniskvóta? Hver ákvað að samfélög framtíðarinnar ætti að byggjast á miðstýrðu eftirliti, samfélagslegri stýringu og reglugerðum sem virðast alltaf koma utan frá, en enda sem stjórnvaldsákvarðanir án mikillar umræðu eða aðkomu almennings? Þeir félagarnir skoða einnig Club of Rome og þær kenningar að mannfjöldinn sjálfur sé mesta ógn mannkyns og hvernig sú hugmyndafræði hefur smám saman smogið inn í stefnumótun ríkja um allan heim, oft undir yfirskini sjálfbærni, velsældar og öryggis. En ef markmiðið er að bjarga heiminum, af hverju fær almenningur aldrei að taka þátt í ákvarðanatökunni? Og hvers vegna virðist öll gagnrýni á þessa þróun afgreidd sem samsæriskenningar og bull, sama hversu vel rökstudd hún er? Þeir Guðjón, Haukur og Ómar ræða líka áhrif WEF og hvernig það virðist nánast orðið eins konar stjórnkerfi handan ríkisvaldsins. Þar sem hagsmunaaðilar og „óháðir sérfræðingar“ fá að móta stefnu sem síðan verður að lögum og almenningur fær ekkert að segja. Hvað í ósköpunum merkja slagorð á borð við The Great Reset, Build Back Better eða One Health og hvað í veröldinni er eiginlega Stakeholder Capitalism? Er þetta sameiginlegt átak mannkyns í átt að bjartari framtíð? Eða nýtt kerfi þar sem völdin færast frá kjörnum fulltrúum til þeirra sem mæta á rétt fundarboð? Og ef þetta eru bara góðmenn í jakkafötum að reyna að gera sitt besta, hvers vegna er allt svona leynilegt, lokað og óræðið? Og hvers vegna eru þetta alltaf sömu gömlu gráu jakkafatakakkalakkarnir á öllum þessum fundumm? Algerlega óháð því hver eða hverjir eru við völd? Og hvers vegna virðist alltaf vera búið að ákveða allt áður en almenningur fær tækifæri til að spyrja spurninga? Er raunverulega verið að reyna að bjarga heiminum eða eru þetta bara virkilega vel markaðsett heimsyfirráð? Þetta og svo margt, margt fleira í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem þeir félagarnir halda áfram að ræða líklega yfirgripsmiklu samsæriskenninguna, hugmyndina um að leynilega valdaklíka stefni að hinni nýju heimsskipan(NWO). Þar sem meiri og meiri völd færast á hendur færra og færra fólks. Fólks sem aldrei þarf að svara spurningum eða verða fyrir gagnrýni almennings.. Fólks sem enginn kaus og vill helst að þú haldir áfram að hlýða, borga reikninga og halda kjafti UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Duration:02:48:24

Ask host to enable sharing for playback control

P1: Leynileg klíka stefnir að New World Order eða hinni nýju heimsskipan | Hluti 1

7/25/2025
Til er fólk sem trúir því staðfastlega að heimurinn sé í óreiðu vegna vankunnáttu, mistaka vanhæfni stjórnmálafólks eða einhverskonar náttúrulegs glundroða. En svo eru aðrir, sem sumir hafa útnefnt Álhatta, sem telja að heimurinn sé í raun þaulskipulagður af myrkum og illum öflum og að heimurin sé vísvitandi að versna vegna áætlana þessara afla. Kenningin um hina svokölluðu nýju heimsskipan „New World Order“ (NWO) er líklega ein sú langlífasta og yfirgripsmesta af þeim öllum. Þar er því haldið fram að leynileg alþjóðleg elíta og nokkurs konar valdaklíka úr röðum stjórnvalda, bankamanna og iðnjöfra vinni í skjóli nætur að því að koma á nýrri heimsskipan. Heimi þar sem þjóðríki eru leyst upp, sjálfsákvörðunarréttur landa afnuminn, og mannkynið situr allt undirgefið undir grjóthörðu miðstýrðu eftirlitskerfi elítunnar. En hverjir eru þessir huldumenn og konur í myrku reykfylltu bakherbergjunum? Er þetta bara öfgakennt rugl og þvaður einhverra vitfyrringa með alvarlegar ranghugmyndir eða vel skjalfest saga sem teygir sig langt aftur? Hvernig tengist þetta Bilderberg-hópnum, frímúrarareglunni, WEF og World Bank? Var Maastrichtar-sáttmálinn bara eitt smátt skref í átt að NWO? Og hvers vegna er eins og enginn hafi nokkurntíman kosið um þessi „framtíðarsýn“? Hvar er lýðræðiið í því. Í þessum nýjasta þætti af Álhattinum velta þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór því fyrir sér hvort að NWO sé raunveruleg þaulskipulögð áætlun voldugra afla, til að sameina heiminn undir einni risavaxinni alheimsstjórn, sem mun stýra almenningi eins og Sims karakterum. Eða hvort það sé einfaldlega einn stór misskilningur, þar sem ræðuhöld og opinberar stefnumótandi áætlanir hafa verið rangtúlkaðar af tortryggnum netverjum með full mikinn frítíma. Hvað er það sem veldur því að þessi kenning heldur áfram að lifa og dafna? Hverjir eiga að fá að ráða í hinni nýju heimsskipan og hverjir verða undir? Hvað felst í slagorðum eins og „Build Back Better“, „The Great Reset“ og „One World Government“ þegar þau eru skoðuð í samhengi við valdafólk á Davos? Þetta og svo margt, margt fleira í nýjasta þætti Álhattarins, sem er einungis fyrri hlutinn af tveimur, þar sem þeir félagar velta því fyrir sér hvort leynileg valdaklíka stefni að hinnu nýju heimsskipan(e: new world order) bakvið tjöldin. HLEKKIR Á ÍTAREFNI https://youtu.be/PjszCrNUvZE?si=nRdHX7BWxOGVsuu7Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Duration:02:11:40

Ask host to enable sharing for playback control

P2: Mannleg losun gróðurhusalofttegunda hefur lítil sem engin áhrif á hitastig jarðar (e. climate change) | Hluti 2

2/21/2025
Hver hefur ekki heyrt um gróðurhúsaáhrifin, loftslagsbreytingar og hamfarahlýnun? Hina meintu og svokölluðu ógn við allt lífríki jarðar sem mun grilla mannfólkið, drekkja öllu landi undir sjó og gera gjörsamlega út af við allt sem kvikt er á jörðu niðri á næsta stundarfjórðungi, ef við förum ekki öll að hugsa okkar gang og bæta um betur. a Al Gore, Greta Thunberg, Björk og Thom Yorke geta varla öll haft rangt fyrir sér er það? Að ógleymdum öllum vísindamönnunum, sem samkvæmt hamfarhlýnunar harmakveiknurum, eru allir alltaf sammála um að hamfarahlýnun sé í gangi allstaðar og ekkert annað komi til greina. En er það raunin? Hvað ef að við mannfólkið höfum í raun lítil sem engin áhrif á loftslag eða hitastig jarðar? Eru þetta kannski bara glórulausar og óraunhæfar ranghugmyndir brjálaðra vísindamanna með mikilmennskubrjálæði? Hefur mannfólkið raunverulega öll þessi áhrif eða eru þetta bara hroki og hleypidómar í okkur mannfólkinu? Kannski erum við ekki eins megnum og við teljum? Ef staðreyndin er sú að mannfólkið ber í raun einungis ábyrgð á 18% hluta af þeirri aukningu sem orðið hefur í losun koltvíoxíðs og í raun bara um 4% heildarmagnsins á jörðinni. Hvaðan koma líka þessar fullyrðingar og skýrslur um að allir vísindamenn séu alltaf allstaðar sammála um að hamfarahlýnun af mannavöldum sé í gangi og hversu stór hluti þessara svokölluðu sérfræðinga og vísindamanna veit ekki einusinni afþví að þeir séu á þessum listum? Vega 18% virkilega meira en 82%? Hafa falsvísindi, blekkingar og platgabb tekið yfir vísindaheiminn og heilaþvegið almenning með einhverju froðusnakki og frati? Eða eru þetta allt falsfréttir, misskilningur og blekkingar ginnkeyptra Álhatta sem skortir vísindalæsi? Eru Trump og Álhattar að misskilja lífið og tilveruna eða hefur hulduöflunum tekist að heilaþvo okkur öll með brúðuleikriti sínu þar sem hinir meintu og svokölluðu vísindamenn eru notaðir sem strengjabrúður og áróðursmaskínur til þess að sannfæra almenning um að allt sé á leið til fjandans svo auðveldara verði að stjórna okkur? Okkur er sagt að þetta liggi allt fyrir klippt og skorið og að staðreyndirnar séu algjörlega óumdeildar og óvéfengjanlegar, svart á hvítu. En er það? Er allt vísindafólk alltaf sammála? Passar það við hugmyndir okkar um það hvað raunveruleg vísindi séu? Eflum við þekkingu mannfólksins með því að setja aldrei spurningar við ráðandi skoðanir eða viðmið og gildi? Hverjum hentar það? Almenning? Yfirvöldum? Valdastéttinni? Öreigunum? Þetta og svo margt margt fleira spennandi í þessum síðari þætti Álhattarins þar sem Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór fjalla um þá skemmtilegu og áhugaverðu samsæriskenningu að mannfólkið hafi lítil sem engin áhrif á hitastig jarðar eða loftslagsbreytingar. Sem okkur almenningi hefur verið selt sem vísindalega staðreynd og almenna vitneskju. En hvernig vitum við í raun að þetta rétt sé rétt? HLEKKIR Á ÍTAREFNI https://youtu.be/_6qkjPRmNsA?si=AtNv3jDC6dMOHdcMhttps://youtu.be/1fYlGk1UnK0?si=o2pEppisLmUG5WkOhttps://www.youtube.com/watch?v=mhDrCPfKgG4UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Duration:02:10:05

Ask host to enable sharing for playback control

P1: Mannleg losun gróðurhúsalofttegunda hefur lítil sem engin áhrif á hitastig jarðar (e. climate change) | Hluti 1

2/7/2025
Það eru líklega fá málefni sem hafa verið jafn áberandi í umræðunni undanfarin ár og hlýnun jarðar. Já, eða öllu heldur loftslagsbreytingar eða hamfarahlýnun eða hvað sem að fólk vill kalla þetta fyrirbrigði. Loftslagsmótmæli barna og ungmenna hafa farið fram um allan heim með hina sænsku Gretu Turnberg í broddi fylkingar. Almenningur hefur verið varaður við óafturkræfum og stóirfenglegum breytingum á veðurfari jarðar sem séu ekki bara yfirvofandi heldur þegar hafnar og nauðsynlegt er að stöðva. Ef marka má umræðuna. Þetta ku vera stórt og grafalvarlegt vandamál og við berum öll sameiginlega ábyrgð. Öll verðum við að standa saman sem ein heid og leggja okkar vatn á vogarskálarnar til þess að stöðva þessa stórhættulegu hamfarahlýnun sem við, mannfólkið, berum ábyrgð á og enginn annar. Amk ef marka má meginstraumsmiðlana, Al Gore og almenna umræðu. En til er fólk sem efast um þessar breytingar og þá aðalega þátt mansins í þessum breytingum. Eru þessar verðurfars og loftslagsbreytingar kannski bara ósköp eðlilegar og hluti af náttúrulegu ferli jarðarinnar sem hefur átt sér stað mörgum sinnum áður og mannskepnan hefur lítil sem engin áhrif á, sama hvað við reynum? Hefur jörðin ekki gengið í gegnum fjölmörg hita og kulda tímabil áður og ætíð komið aftur tilbaka ósködduð? Hverjar eru þessar svokölluðu gróðurhúsalofttegundir og í hverju felast hin meintu gróðurhúsaáhrif? Líklega efast fáir um tilvist þessara efna eða möguleg áhrif þeirra á loftslagið en til er fólk sem hefur sett spurningamerki við raunverulegan þátt mannsins í losun þessara tegunda. Og hvernig getur mannfólkið hægt á þessum breytingum ef mannfreskjan ber í raun bara ábyrgð á örsmægðarhlut þessara 0,04%? Hverju breytir það þó við hættum allri losun koltvíoxíðs ef við mannfólkið losum bara 15% alls þess koltvíoxíðs sem er í andrúmsloftinu? Þetta og svo fjölmargt annað áhugavert og spennandi í þessum nýjasta þætti af Álhattinum þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða þá afar áhuugaverðu en jafnframt fremur umdeildu samsæriskenningu að mennsk losun gróðurhúsalofttegunda hafi lítil sem engin áhrif á hitastig jarðar. HLEKKIR Á ÍTAREFNI BREAKING: Karoline Leavitt Reveals What The Drones Were Flying Over New JerseyGRETA THUNBERG & ANDREAS MAGNUSSON - Never Gonna Give You Up - Climate Live Sweden (HD)CONTINENTAL U.S. HURRICANE LANDFALL FREQUENCYClimate Change Hoax - Scam of a Century - New MovieAl Gore Warns Polar Ice May Be Gone in Five YearsThe Planet is Fine - George CarlinJoe Rogan reveals THE TRUTH about Climate Change to Mel Gibson | JRE PodcastUM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Duration:02:36:41

Ask host to enable sharing for playback control

P1: Við búum í hermiveröld (e. simulation) og raunveruleiki okkar er sýndarveruleiki | Hluti 1

12/13/2024
Hvað ef allt sem þú sérð, finnur og upplifir er ekki raunverulegt? Hvað ef veröldin sem við búum í er ekkert annað en sýndarveruleiki, fullkomlega hannaður til að blekkja skynjun okkar og halda okkur frá hinum sanna raunveruleika? Þetta er spurningin sem liggur til grundvallar hermiveraldarkenningunni (e.Simulation Theory), sem hefur vakið ófáar vangaveltur heimspekinga, vísindamanna og samsærissinna undanfarin ár og í raun frá upphafi siðmenningar. Eða amk frá því heimspeki varð til. Kenningin byggir á þeirri hugmynd að allt sem við upplifum sé hluti af risa tölvuforriti, hönnuðu af einhverskonar æðri og tæknivæddari siðmenningu, óþekktum valdaöflum eða jafnvel „forriturum“ sem stjórna heiminum. Frá Platón til hugmynda Nick Bostroms og James Gates hafa margir fjallgreindir og virtir vísindamenn haldið því fram að við búum í sýndarveruleika þar sem alheimurinn fylgir lögmálum sem minna meira á tölvukóða frekar en náttúrulögmál. James Gates hefur meðal annars bent á að undirstöðulögmál eðlisfræðinnar innihaldi mynstur sem líkjast villuleiðréttingarkóðum, svipuðum þeim sem notaðir eru í tölvukerfum. Og skammtafræðin, með dularfull fyrirbæri eins og tvírifatilraunina og skammtaflækjur, vekur spurningar um hvort raunveruleikinn sé aðeins „renderaður“ þegar við horfum á hann, líkt og grafík í tölvuleik. Svo eru það „Mandela-áhrifin,“ sem hafa áður verið til umfjöllunar hjá Álhattinum. Furðuleg augnablik þegar fólk man eftir atburðum sem aldrei áttu sér stað, eins og breytingar á nafni Coca-Cola eða dánardegi Nelson Mandela? Einhverskonar sameiginlegar falsminningar. Gætu slík fyrirbæri verið villur í kerfinu? Er alheiminum í raun stýrt af ósýnilegum öflum sem tryggja að við sjáum aðeins það sem þau vilja að við sjáum? Í þessum þætti Álhattarins kafa Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór djúpt í þessa stórmerkilegu kenningu. Þeir skoða hvernig hugmyndir Platós, Descartes, Immanuels Kant og nútíma vísindamanna eins og James Gates og Nick Bostrom varpa ljósi á mögulega hermiveröld. Þeir kanna líka hvernig skammtafræði, strengjafræði og poppmenning, eins og The Matrix og The Truman Show, varpa ljósi á eðli veruleikans. Eða óeðli. En hvað ef þetta er allt samsæri? Hvað ef raunveruleikinn sem við trúum á er ekki annað en blekking? Erum við í raun leikmenn eða karakterar í stórkostlegum tölvuleik eða er alheimurinn einfaldlega flóknari en við höfumskiling á? Erum við öll keppendur á óraunveruleikunum? Þetta og margt fleira í þessum djúphugsaða, vonandi vitsmunalega og stórskemmtilegt þætti Álhattarins. Support the show UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Duration:01:56:36

Ask host to enable sharing for playback control

P2: Nafnlausir póstar sem birtust á 4chan með undirrituninni Q komu frá hátt settum aðilum með náin tengsl við Trump | Hluti 2

11/1/2024
Í október 2017 fóru að birtast undarlegir og nokkuð dularfullir póstar undir dulnefninu Q á umræðuþráðum á síðunni 4chan. Q þessi gaf sig út fyrir að vera háttsettan aðila úr Ríkisstjórn Donald Trump og sagðist vera að koma skilaboðum beint frá Trump sjálfum til stuðnings fólks hans. Q fór mikinn um hreinsunarstarf Trump í Washington og baráttu hans gegn djúp ríkinu(e.deep state) og tilraunir hans til að tæma síkið(e. Drain the swamp). Í þessari herferð sinni myndi Trump afhjúpa barnaníðinga og aðra óvini fólksins og láta handtaka þá og fleygja lyklunum. Q talaði yfirleitt í óljósum margtúlkanlegum setningum sem oftar en ekki fólu í sér einhverskonar spurningar frekar en staðhæfingar og flestum færslunum var ætlað að vekja fólk til umhugsunar frekar en koma með einhverjar fullyrðingar eða spádóma. Fylgisfólk Q, svokallaðir Qanons, hófu svo að dulkóða og túlka þessar færslur Q og reyna að átta sig á því hvað væri verið að vísa hverju sinni. Svo hægt væri að upplýsa almenning. Voru fjöldahandtökur á barnaníðings demókrötum framundan? Myndi Trump nota ákveðin orð , handabendingar eða myndmál í næstu ræðu sinni? Q kom oft með vísbendingar um eitthvað sem Trump átti að segja eða gera í ræðu á næstunni og svo raungerðist það, var þar með búið að sanna að Q væri náinn samstarfsaðilli Trump? Eða vara bara um hreinar tilviljanir að ræða? Voru þetta ef til vill óheiðarlegar tilraunir skuggalegra hulduuafla og djúpríkisis til þess að stöðva framgöngu Trump og hreinsunarstarfs hans í Washington? Starfa stjórnmálafræðingarnir og sérfræðingarnir nánast allir fyrir jakkalakka og fjörulalla? Varaði Q fólk við því að svindlað yrði á Trump í kosningunum 2020 og getur verið að kosningunum hafi raunverulega verið stolið? Er Q mögulega mótvægið við hulduöflin sem við svo nauðsynlega þurfum á að halda?? Mun Q bjarga heiminum frá tortímingu og glötun? Eða er Q einmitt merki um hið gagnstæða og vísbending um hnignun samfélagsins og forheimskun mannfólksins eins og sérfræðingarnir vilja meina? Þetta og svo margt margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, sem er fyrri partur af tveimur, þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða hina fremur umdeildu en einstaklega áhugaverðu samsæriskenningu að hinn dularfulli Q, sem póstaði nafnlaust á umræðu síðunni 4Chan, sé háttsettur aðilli sem hafi náin tengsl við Trump og stjórn hans. HLEKKIR Á ÍTAREFNI QAnon: How a conspiracy theory turned into a radical movementQ póstarV For Vendetta Speech - Seeds of Revolution! HDMichael Flynn talking about army of digital soldiersSidney Powell - Anthony Weiner Laptop! “Hardened investigators, literally threw up. It’s bad!WATCH: Trumps, Obamas, Clintons and Carters share a pew at funeral of President George H.W. BushUM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Duration:03:15:52

Ask host to enable sharing for playback control

P1: Nafnlausir póstar sem birtust á 4chan með undirrituninni Q komu frá hátt settum aðilum með náin tengsl við Trump | Hluti 1

10/18/2024
Í október 2017 fóru að birtast undarlegir og nokkuð dularfullir póstar undir dulnefninu Q á umræðuþráðum á síðunni 4chan. Q þessi gaf sig út fyrir að vera háttsettan aðila úr Ríkisstjórn Donald Trump og sagðist vera að koma skilaboðum beint frá Trump sjálfum til stuðnings fólks hans. Q fór mikinn um hreinsunarstarf Trump í Washington og baráttu hans gegn djúp ríkinu(e.deep state) og tilraunir hans til að tæma síkið(e. Drain the swamp). Í þessari herferð sinni myndi Trump afhjúpa barnaníðinga og aðra óvini fólksins og láta handtaka þá og fleygja lyklunum. Q talaði yfirleitt í óljósum margtúlkanlegum setningum sem oftar en ekki fólu í sér einhverskonar spurningar frekar en staðhæfingar og flestum færslunum var ætlað að vekja fólk til umhugsunar frekar en koma með einhverjar fullyrðingar eða spádóma. Fylgisfólk Q, svokallaðir Qanons, hófu svo að dulkóða og túlka þessar færslur Q og reyna að átta sig á því hvað væri verið að vísa hverju sinni. Svo hægt væri að upplýsa almenning. Voru fjöldahandtökur á barnaníðings demókrötum framundan? Myndi Trump nota ákveðin orð , handabendingar eða myndmál í næstu ræðu sinni? Q kom oft með vísbendingar um eitthvað sem Trump átti að segja eða gera í ræðu á næstunni og svo raungerðist það, var þar með búið að sanna að Q væri náinn samstarfsaðilli Trump? Eða vara bara um hreinar tilviljanir að ræða? Ef marka má meginstraums miðlana og mennta og menningarelítuna þá er ekkert að marka eitt aukatekið orð sem að Q sagði og allir hans spádómar eru innantómt merkingarlaust þvaður og einhverskonar stæk upplýsingaóreiða og falsflóðQ Anons, eru málaðir upp sem fáfrótt, ginnkeypt og jafnvel rasískt pakk sem samfélaginu stafar mikil ógn af og jafnvel ýjað að því að þagga verði niður í þessu fólki og koma í veg fyrir frekari dreifingu þessarar kenningar. Voru þetta ef til vill óheiðarlegar tilraunir skuggalegra hulduuafla og djúpríkisis til þess að stöðva framgöngu Trump og hreinsunarstarfs hans í Washington? Starfa stjórnmálafræðingarnir og sérfræðingarnir nánast allir fyrir jakkalakka og fjörulalla? Varaði Q fólk við því að svindlað yrði á Trump í kosningunum 2020 og getur verið að kosningunum hafi raunverulega verið stolið? Er Q mögulega mótvægið við hulduöflin sem við svo nauðsynlega þurfum á að halda?? Mun Q bjarga heiminum frá tortímingu og glötun? Eða er Q einmitt merki um hið gagnstæða og vísbending um hnignun samfélagsins og forheimskun mannfólksins eins og sérfræðingarnir vilja meina? Þetta og svo margt margt fleira áhugavert í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, sem er fyrri partur af tveimur, þar sem þeir félagar Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór ræða hina fremur umdeildu en einstaklega áhugaverðu samsæriskenningu að hinn dularfulli Q, sem póstaði nafnlaust á umræðu síðunni 4Chan, sé háttsettur aðilli sem hafi náin tengsl við Trump og stjórn hans. HLEKKIR Á ÍTAREFNI QAnon: How a conspiracy theory turned into a radical movementQ póstarUltimate QProofsDoc"Q"mentary About The Plan To Save America And The WorldUM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Duration:02:32:16

Ask host to enable sharing for playback control

P2: Pizzagate: Comet Ping Pong Pizza og eigandi þess, James Alefantis, er viðriðinn barnamansalshring fyrir elítuna | Hluti 2

7/12/2024
Í þessum síðari hluta Álhattarins, um hið umdeilda en áhugaverða mál, Pizzagate kafa þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór enn dýpra ofan í kanínuholuna í leit að einhverskonar sannleika eða í það minnsta áhugaverðri umræðu. Þeir skoða undarlegar og tvíræðar færslur og ummæli James Alefantis, eiganda Comet Ping Pong, á samfélagsmiðlum, sem þykja í besta falli vafasamar ef ekki hreint út sagt ógeðfeldar. Elijah Wood, Corey Feldman og aðrar barnastjörnur og upplifun þeirra í Hollywood berast í tal auk þess er Álhatturinn kemst að því að Alefantis á og rekur einnig Borðtennis Pizzastaði í fleiri löndum, sem gætu mögulega hafa tekið við hlutverki Comet Ping Pong í barnaníðinu, eftir að upp komst um staðinn í Washington. Þetta og svo margt margt fleira áhugavert og undarlegt í þessum nýjasta þætti af Álhattinum, þar sem þeir Guðjón Heiðar, Haukur Ísbjörn og Ómar Þór halda áfram að kryfja hina umdeildu en jafnframt allt áhugaverðu kenningu sem kennd hefur verið við Pizzagate. Er um stórhættulega upplýsingaóreiðu sem getur ógnað lýðræðinu og vitsmunalegri umræðu að ræða, líkt og stóru meginsstraumsmiðlarnir vilja meina? Eða er eitthvað gruggt í vatninu í Washington og James Alefantis er að baka pizzur með óhreint mjöl í pokahorninu? HLEKKIR Á ÍTAREFNI Dr. Phil Kendall Trafficking Full Episode#PizzaGate Everything You Need To Know AboutPIZZAGATE/PEDOGATEThe PIZZAGATE Evidence You Will NEVER See In The Mainstream Media'PIZZAGATE KILL ROOM DISCOVERED @ PEGASUS MUSEUM! OWNED BY JAMES ALEFANTIS' - 2017Pizzeria owner targeted by fake news stories speaks outActor Corey Feldman Exposes Pedophile Hollywood EliteElijah Wood Says There is a 'Major' Pedophilia Problem in HollywoodGoing undercover to catch a serial paedophile | 60 Minutes AustraliaMARINA ABRAMOVIC SPIRIT COOKINGmonica-peterson-who-traveled-to-haiti-to-investigate-sex-trafficking-was-suicided-when-she-linked-the-clinton-foundation-caracol-industrial-complex/UM ÁLHATTINN Í þessu einstaka hlaðvarpi munu vinirnir og spekúlantarnir Ómar Þór Ómarsson, Haukur Ísbjörn Jóhannsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson taka fyrir og fara yfir samsæriskenningar af ýmsum toga og ræða þær fram og til baka. Í hverjum þætti verður ein fullyrðing rædd og munu þeir gefa einkunn á bilinu 1-10 byggt á því hversu sammála þeir eru fullyrðingunni í upphafi ferlisins. Síðan þegar þættinum er lokið gefa þeir aðra einkunn og þá mun koma í ljós hversu mikið afstaða þeirra hefur breyst.

Duration:02:42:59